Sæll geirag. Þessi upptalning þín er ágæt hugleiðing í sjálfu sér en mér finnst vanta að kíkja ögn lengra varðandi það atriði hvaðan skatttekjur eiga að koma. Að niðurskurður í rekstri ríkisins sé eina leiðin til þess að lækka skatta er allt of viðtekin hugmynd að mínu áliti og menn allt of fastir í þeirri hugmyndafræði, hver um annan þveran. Það breytir ekki því að stofnanir ríkisins má reka betur og gera skilvirkari, það er annað mál, til þess þarf m.a. mun virkara aðhald almennings. Í...