já, það eru merkilega margir sem horfa. Ég hef horft meira og minna á Leiðarljós síðan 1993 þegar ég var 10 ára.. oft verið strítt en mér er sama :) ég man á sumardaginn fyrsta fyrir sennilega svona 6 árum, sleppti ég því að fara uppí sumarbústað því þátturinn frá deginum áður var svo spennandi. Þá féll hún Reva niður af brúnni og var næstum dáin, var hún ekki í dái í marga mánuði og Alan Spaulding hafði innréttað eitthvað massasjúkraherbergi?