Eftir góð áramótaskaup árin 2001 og 2002 kom eitt leiðinlegasta Áramótaskaup sem ég hef séð. Þetta var alltaf einsog maður væri að horfa á Spaugstofuna, þreyttar eftirhermur. Of mörg söngatriði. Nánast öll atriðin of langdregin. Þetta var ekki ferskt skaup heldur myglað. Ingibjörg Sólrún, Davíð og Halldór, ekkert nýtt. Mér var farið að dauðleiðast, og sumir sem ég var að horfa með voru farnir að troða snakki uppí nefið á sér og lesa leiðbeiningar fyrir flugelda,og jafnvel telja jólaljósin á...