Grand Vitara XL-7 er nýjasti og stærsti jeppinn frá Suzuki. Hann er byggður á traustum grunni og áratuga reynslu Suzuki í smíði rúmgóðra og sparneytinna jeppa. Grand Vitara XL-7 er byggður á heilli grind og er með háu og lágu drifi, sem gefur frábæra aksturseiginleika jafnt á vegum sem vegleysum. Til að auka öryggi ökumanns og farþega er XL-7 með öryggisloftpúða, styrktarbita í hurðum og ABS hemlalæsivörn með rafstýrðri jöfnun sem staðalbúnað. Þarfir manna eru misjafnar, því eru sæti fyrir 7, en mjög einfalt er að breyta farþega og farangursrými eftir þörfum hvers og eins. Vélin í XL7 er 2,7 lítra DOCH V6, 173 hestöfl og meðaleyðsla aðeins 10,8 lítrar á hundraði..