Talandi um Jimny, hefur einhver reynslu af því að breyta svona bíl. Ég er að fara að ráðast í það verk um leið og fjármagn leyfir. Af þeim sem ég hef talað við þá á það ekki að vera mikið mál, bara skella gormahækkun og boddíhækkun undir, skera eitthvað úr og líma kantana á. Helsti vandinn er að kantarnir eru sjaldséðir, hef bara fundið þá í Fjallasport og þar kosta þeir 68þús.