við höfum ákveðið að fresta útgáfu fimmtu breiðskífu okkar fram yfir jól, þrátt fyrir fínar viðtökur á laginu “musick” á öldum ljósvakans (endalausar þakkir fyrir það). ástæðan er einfaldlega sú að ekki náðist að klára plötuna í tækri tíð. búið er að hljóðrita og hljóðblanda allt en aðrir liðir hefðu orðið þess valdandi að ómögulegt hefði verið að gefa út plötuna fyrr en í fyrstu viku desember og það vildum við alls ekki gera.

smekkleysa gefur plötuna út, og var það sameiginleg ákvörðun ása “í gramminu” og liðsmanna maus að bíða fram að vori. dagsetning verður nánar tilkynnt síðar.

með kveðju,
drengirnir í maus