Allt sem þú drepst ekki af því að skorta er gerviþörf, grundvallarþarfir eru því hollur matur, vatn, skjól fyrir kulda og jafnvel einhverjar spjarir utan um þig. Sumir vilja flokka félagslega þáttinn inn í þetta þar sem ekki margir gætu lifað einir lengi án þess hreinlega að verða geðveikir. Því er sígarettan í eðli sínu gerviþörf. Fyrir þá sem eru háðir reykingum virðist hún vera mjög mikilvæg og erfitt að lifa án hennar en það er bara fíknin að tala. Við búum í samfélagi þar sem öllum...