Ok, þetta er algengt í öðrum tungumálum, en önnur tungumál eru ekki íslenska… Af því það eru 12 föll í finnsku er þá bara eðlilegt að við tökum upp 8 föll í viðbót? Svo var ekkert að mínum mannasiðum eða rökstuðningi svo hættu að tala um það. Jú, þú talaðir um móðurmál, mér finnst þetta bara svo fáránlega sett fram hjá þér að ég varð orðlaus, og er í raun enn. Að einhver geti haldið því fram að hann kunni tungumál, frá a til ö, og geti ekkert meira lært er bara svo kjánaleg staðhæfing.