Bettý - 3 mánaða Þetta er hún Bettý, nýi kettlingurinn minn. Hún fannst úti ásamt systkinum sínum eftir að móðir þeirra hafði skilið þá eftir. Þeir voru 2 vikna gamlir þegar þeir fundust, og fengu allir kettlingarnir að búa hjá kunningja mínum þar til þeir urðu 8 vikna. Þegar hún var orðin 8 vikna tók ég og konan mín við henni. Skemmtilegur liturinn á augunum hennar, annað er brúnt og hitt blátt.