Það að þú sjáir ekki fíkla á Íslandi þá þýðir það ekki að ástandið sé neitt skárra en annars staðar. Fíklar á Íslandi líða fyrir skoðanir fólks eins og þín, þeir þora ekki að sýna sig, þeir þurfa að fremja glæpi til að fjármagna neyslu sína (þú hlýtur að þekkja einhvern sem hefur verið brotist inn hjá er það ekki?), handrukkarar sjá um að framfylgja lögunum hjá þessu fólki og eiturlyfin sem það er háð og verður að taka til að komast gegnum daginn eru oftar en ekki þynnt og blönduð allskonar...