Textpad: the code must be pure Ég nota alltaf Texpad þegar ég er að kóða, líklega af því að ég treysti engu(m) öðru(m) til að kóða fyrir mig. TextPad er þægilegt fyrir þá sem forrita mikið í php með það að gera að það litakóðar php, og það er hægt að stilla til hvað það litakóðar. Það litakóðar líka flest önnur major forritunarmál, eins og c, Java, perl, asp(minnir mig), html(forritunarmál og forritunarmál) og fleiri og svo er líka litakóðun fyrir css. Við þetta má svo bæta að forritið er sérstaklega aðlagað að því að forrita í Java, upp á compælingu að gera og svona. Svo eru líka mjög þægilegir search eiginleikar í forritinu(regexp search, multiple file search, etc.).

Í Textpad má líka finna línunúmeringu, document selector tab-inn og margt annað í þessu, svona einfaldir hlutir sem eru ómissandi.

Áður en ég fékk mér TextPad þá var ég með Notepad… ef maður fer úr notepad yfir í almennilegan kóðara þá verður ekki aftur snúið. Notepad (fyrir win9xCrap seríuna a.m.k.) er hrikalegt forrit, höndlar ekki fæla sem eru stærri en eitthvað (man ekki, voru það 16kb eða 32kb ?), er ekki með replace möguleika og fleira. Eitt sem er líka þægilegt við Textpad er það að ef að fællinn sem er verið að vinna í er uppfærður frá öðrum stað (t.d. af öðrum á networki eða fællinn sóttur aftur af ftp eða e-ð) þá er hægt að velja hvort maður uppfæri miðað við það eða noti áfram það sem maður er með uppi á skjánum.

Fyrir utan það sem ég tel upp eru fullt af sniðugum fídusum, eins og Macro handler, Full screen edit möguleiki, save-able workspace … fyrir utan það að forritið er allt mjög stillanlegt.

Ég mæli því tvímælalaust með textpad - sérstaklega fyrir þá sem kunna að kóða: <a href="http://www.textpad.com“ target=”_blank">(Fara á síðu þeirra í nýjum glugga)</a