Slátrarinn frá Texas Fáir hafa farið varhluta af því að árið 2000 var sett met í aftökum í Bandaríkjunum í Texas þegar 40 manns voru teknir af lífi. Þróunin hefur hins vegar verið sú að í ár hefur fjöldi aftaka lækkað niður í 12 það sem af er árinu, en ennþá á eftir að framkvæma 6 í viðbót.
Það “skemmtilega” eða ellegar skrýtna við þessa snöggu fækkun er það að þetta á sér stað nákvæmlega árið eftir að George Bush lætur af embætti sem ríkisstjóri Texas. Því getur vel verið að eitthvað sé til í því sem margir sögðu um hann, þ.e. að hann væri hvatamaðurinn á bak við margar (ef ekki allflestar) aftökurnar.
Mér þætti gaman að heyra sjónarmið annarra á þessu….

kveðja,
Haukurt