ja, þar sem ég myndi skjóta á að dekkin séu í kring um 1,70 metra þá held ég nú að stélið sé hátt í 2 metra, ef ekki meira frá jörðu, en ekki 50 cm, samt svolítið knappt, en sleppur auðveldlega
reyndar er það rétt og vissi ég það þegar ég skrifaði þetta, en ég hugsaði samt eins og kennt er í menntaskólaeðlisfræðinni, þar sem allt gerist í lofttæmi, því að loftmótstöðureikningar eru offiða laaaaaaaaang flestum ef ekki öllum sem stunda þennan vef :P
djöfull viktar þetta, jeppinn hjá mér á hásingum bæði framan og aftan, fjöðrum að aftan og með sex sílindera línu sex hlunk viktar samt ekki nema 1455 kíló
meira það að þeir viilja stórar vélar með mikið afl allstaðar á snúningskúrvunni til að bíllinn sé nothæfur í annað en að vera að spyrna og keyra hratt, óþolandi að vera með allt afl á 6000 snúningum+ því að þá þarftu alltaf að gefa svo svakalega inn á ljósum til að komast af stað, bara þreytandi. þessi bíll er sko ekki hannaður í það að vera alltaf í botni, hann er hannaður þannig að þú getir notað aflið í eðlilegum akstri
það er nú bara þannig að þú kemur hvaða bílamótor í hvaða bíl sem er, bara mismunandi hve mikillar vinnu og breytinga það krefst, en alltaf krefst það kunnáttu, þó svo að hún þurfi ekki að vera nema basic og hitt kemur bara, en ef þú kannt þetta ekki alveg tekur þetta bara lengri tíma
og tilhvers að taka prófið ef maður má ekki vinna á þessu? frekar bara að taka C1 prófið (mynnir mig að það heiti) ef þú ætlar að geta keyrt stóru amerísku pikkana
sérstakt að sjá að þú hafir ekki valið ljósopið sjálfur, samt kemur hún skemmtilega út, enda ekki nema með ljósopið í f/9 (já ég sótti myndina og skoðaði hana þar:P) hefðir mögulega náð henni aðeins skemmtilegri með eitt F klikk minna ljósop (hærri tala fyrir þá sem ekki vita) og þá aðeins lengri tíma, gæti komið skemmtilegri skerpa í myndina :D annars flott mynd og skemmilegt að sjá litrík þök miðbæjarins :D
þú hlýtur að átta þig á því að vél og linsa getur verið rosalega hamlandi, sumar myndir er ekki hægt að taka með hvaða linsu sem er sökum þess að ljósopið er of lítið og þess háttar, hinsvegar verður enginn góður ljósmyndari nema að hann kunni að redda sér með það sem hann á og gera gott úr því
einhver leiðinlegasta mynd sem ég hef horft á, akkúrat á milli þess að vera of framtíðarleg og að vera ekki nógu framtíðarleg…ef að einhver skilur mig :P
ennþá 18 ár á vörubíl, leigubíllinn er 20 og taxinn 21, en árið 09 verður þetta allt orðið 21 mynnir mig Bætt við 15. september 2007 - 11:33 meina leigubíllinn 20 og rútan 21 :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..