Hæ hó allir nú! Mig langaði aðeins að skrifa smá ferðasögu hér, en þannig er mál með vexti að helgina 5. og 6. júní var ég staddur í Englandi, á festivali sem kallast Download-festival. Mörg ykkar hafa eflaust heyrt um þessa hátíð, en þetta er í annað skiptið sem þessi hátíð er haldin. Áður en ég fer að dásama þessa blessuðu hátíð og ferð mína, skal það þó tekið fram að ég hef aldrei áður farið erlendis á tónleika, hvað þá á svona tónleikahátíð, þannig að ég er kannski ekki bestur í því að...