Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

franur
franur Notandi frá fornöld 34 ára karlmaður
200 stig
Lífið er aðeins vegur sem leiðir til dauða.

Opel frammstuðari (2 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Er með Opel Astra 2000 árgerð og mig vantar á hann frammstuðara, er búinn að vera að hringja í partasölur og eithvað en auðvitað á enginn neitt í þessa ljótu bíla… Svo ég var að spá hvort eithver hérna gæti lumað á þessu eða vitað um eithverja partasölu eða eithvað sem gæti átt svona.

Ermasundsgöngin (11 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég var að spá, hvernig virkar það þegar maður fer frá Bretlandi til Frakklands í gegnum þessi göng hvort eða hvernig maður skipti um akgrein. Því það er vinstri umferð í Bretlandi en ekki Frakklandi eins og flestir vita. Hvernig virkar þetta!? Það koma allir á sömu akgrein inní göngin frá báðum áttum, eða hafa eithverjir snillingar komið með eithverja leiðinlega lausn á þessu?

Barnsminni (6 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvers vegna hlægja börnin þegar þú horfir í augu þeirra? hvers vegna hlaupa folöldin á kyrrum vorkvöldum? hvers vegna fara lömbin í eltingaleik á skurðruðningnum? af því þau þekkja ekki framtíðina sem stendur álengdar sem bíður eftir þeim eins og hvítklæddur öldungur með torræðan svip og kallar þau til sín þegar þau eru tilbúin lækurinn sprettur upp úr lindinni, tær eins og sannleikurinn, gegnsær eins og gler þegar ég var barn lék ég mér oft í bæjargilinu og hlustaði á lækinn hríslast á...

Barróni (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 11 mánuðum
ég sit hér á barnum lem þig með stafnum ætla að skunda á skrallið shit beiglaður á ballið með átján börn í álfheimum blindbeiglaður á skaganum skransandi í skurðunum étandi úr krukkunum skítandi í klúta og fljótandi í saurnum

Ham (2 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 17 árum
Veit einhver hvort að Ham ætli að spila eithvað meira eftir aldrei fór ég suður?

Nigga with attitude (3 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 1 mánuði
-Blátt Hvöss eru augu, erfitt er að sjá. Listina að ljúga, ey allir fá Vertu við hlið mér, Eins og litlu lambi. Á sláturvertíð, Blóð.

Eitt lítið sem ég samdi undir áhrifum frá Steini Steinarr. (18 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Hrímhvítum augum leit veturinn heiðlöndin breið og horfði eftir deginum rökkvaða sem var að ljúka. Úr fjarskanum komum við akandi fámál og leið eins og fuglar í búri sem eiga sér draum um að strjúka. Við stöðvuðum bílinn og settumst þar niður um stund, á steininn sem þegjandi hugsar um allt þetta liðna. Þó kalt sé í veðri og kvöldið sé mætt á vorn fund, er kossinn svo heitur að ísmolar hjarta míns þiðna.

Eignarfall í þýsku? (6 álit)

í Tungumál fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég var að spá hvort það væri til eignarfall í þýsku og/eða hvort það skipti einhverju máli. Í kennslubókinni sé ég ekkert um eignarfall í kaflanum sem ég er að læra en eithverjar glósur frá kennaranum sem ég hef verið að skrifa niður þar er eithvað eignarfall, veit ekki alveg hvort ég hafi verið að misskilja eithvað eða eithvað þannig.

Skemmtileg frétt. (3 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 4 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1244357;rss=1 :')

Smá pæling (33 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég var að spá í af hverju mandarínur koma alltaf bara yfir jólin. Alveg hægt að rækta þetta hvenær sem er með gróðurhúsum og allt það samt eru þær alltaf bara yfir jólin… Svolldið svona spes, meina allir hinir ávextirnir fá að vera allt árið í búðum. Annars væri geðveikt sniðugt að láta alla ávextina fá svona sér tíma og þá myndi maður pottþétt éta meira af þeim. Meina eins og núna þá ét ég svona 10 sinnum meira af mandarínum en ég er búinn að éta af banönum í allt ár. En þetta hefur...

Hjólastóll (6 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvar maður getur fengið hjólastól að láni? Þá án þess að vera eithvað skemmdur.

Vonleysi (26 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 5 mánuðum
ekkert hef ég afrekað, aldrei tekist neitt. Þrautir mínar hef ég sjaldan sigrað, Þetta fer að verða þreytt. En ég er ekki vælukjói, ekkert fær að sjást á mér. Allt er í himnalagi, á meðan að enginn sér.

Reykjavíkurmeistari (5 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Muniði eftir því þegar það var svona innanhússpjótkastmót í Reykjavíkurmóti 10ára eða eithvað í kringum þann aldur, það var geðveikt. Ég vann sko…

Múslímasauðir (168 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Jæja, núna er ég búinn að vera að hlusta á fréttirnar undanfarið og heyrt um þetta mál með að danska blaðið var að byrta myndir af allah. Svo bara tryllast múslímarnir og hóta öllu illu og verða grimmir og illskeittir allstaðar í heiminum. Ef þeir ætla að láta svona þá myndi ég leggja til að Ísland myndi bara banna þeim að koma og flytja til landsins. Meina þessir gæjar eru búnir að vera að sprengja turna og hús hvaðanæva úr heiminum. Ég myndi nú ekki vilja búa nálægt svona fólki.

hættir (9 álit)

í Call of Duty fyrir 18 árum, 3 mánuðum
haste eru hættir í cod1 og höfum fært okkur yfir í cod2. Allt steina að kenna því hann vill ekki lengur spila cod1, því hann er alltaf með svo mikið að gera með hinum vinum sínum sem eru alltaf í partíum. Áki vildi samt halda áfram í cod1 útaf því að við vorum að recruita bömbebein og danna aka ýmir aka sven blömkvist. En mér var alveg sama.

Hesturinn minn, hann Bjössa-Blesi (5 álit)

í Hestar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hesturinn minn er ógeðslega lélegur að tölta, en ekkert mál að fá hann til að tölta en bara lélegur í því. Hann er með ekkert skeið. Hann reynir alltaf að plata mig til að leifa sér að fara á stökk. Hann stekkur yfir girðingar. Hann prjónar oftar en ekki þegar ég er að bíða eftir að það er verið opna hlið(reyndar að hætta því) Hann getur opnað hnúta. Hann þekkir mig hvar sem er og hvenær sem er og er aldrei hræddur við að láta ná sér og er sama sem ekkert erfitt að ná honum. Hann hugsar...

Smá spurningarletti (9 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvenær er morgun?

Greinar í eithvað blað (22 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvernig væri ef að á vikufresti eða eithvað þá myndi einhver grein á huga byrtast í einhverju blaði og vera geðveikt cool. Þá myndu kannski koma betri, lengri og vandaðari greinar. Þá myndi bara þetta blað velja bestu greinina sem komið hefur þá vikuna og vera bara geggjað svalt.

Það er komið að því :( 2 (15 álit)

í Call of Duty fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það er komið að því :( Hinn eitursnjalli spilari Bear, Bear of the fear,scatman, hefur verið ráðinn í vinnu suður á landi og mun því spila CoD lítið í sumar… sorry þið sem grátið en ég get lítið að þessu gert. En nú er bara að bíta í skjaldarendur og taka saman höndunum og hugsa um það sem ég hef gefið ekki aðeins ykkur góðir hálsar, heldur CoD heiminum eins og hann leggur sig. MINNIST MÍn Í GÓÐU! Því ég geri það svo sannarlega um ykkur. Virðingafyllst ps. fer á morgun.

Byssuhornið (13 álit)

í Call of Duty fyrir 19 árum
Hvað er það, á að senda myndir af byssum þangað. Allavega er þetta eithvað mjög skrýtið hjá mér.

Lagið.. :O (2 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Finnst ykkur þetta lag ekki vera svoldið líkt We're all to blame með Sum 41. Allavega finnst mér það.

Nýtt clan (6 álit)

í Call of Duty fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég ætla svona að reyna að stofna svona eitt stikki clan. Ég er einn í því sem stendur en ég vona bara að einhver svona fari kannski svona að joina. Það á að heita lúka eða luka eða eithvað bara svona töff.

Hvernig finnst ykkur? (15 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hvernig finnst ykkar síðuna m´ðina sem ´´eg er að gerra? Síðan

lag? (6 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hvað heitir þarna lagið á penguin chatinu, þarna “i've bin delaid,i've bin delaid” eithvað?

Halo 2 kemur út á miðnætti í Expert (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Halo 2 kemur á miðnætti - ertu ekki á leiðinni í Expert? Halo er einn vinsælasti Xbox leikurinn til þessa. Leikurinn fór sigurför um allan heim og því er ljóst að það bíða margir spenntir eftir nýrri útgáfu á þessum magnaða tölvuleik. Það er allt að gerast núna!!!! Miðnæturopnun í Expert í tilefni af útgáfunni. Mikið verður um dýrðir, fyrstu 50 kaupendur Halo 2 fá 12" pizzu, Sprite og bíómiða á After the sunset. Opnum á miðnætti og þá verður sko partý. Halo 2 Sagan heldur áfram, en leikurinn...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok