Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

flight
flight Notandi frá fornöld 42 stig

Re: Rússarnir mættir

í Flug fyrir 21 árum, 8 mánuðum
jú rétt er það, gæti hafa verið nákvæmari í uppsettningu. Meginn málið er að það er til nóg af flugmönnum hér heima. Líka er mjög erfitt að fá þessa menn valid í gegnum bretland, ef það er hægt. Þessir ágætu menn fá greidd laun sem eru að meðaltali 1000-1300 usd á mánuði, sem er jú víst mjög mikið fyrir þá. Aðalatriðið með þessum skrifum er, TAKIÐ FLUGMENN HÉÐANN ÁÐUR ENN FARIÐ ER AÐ LEITA ANNAÐ, og þá kannski leita okkur nær, t.d þýskaland, danmörk, noregur etc.

Re: Hvítt þrælahald

í Flug fyrir 21 árum, 11 mánuðum
sammála þér jerryó, þetta verður að lifa. Mér sýnist þetta ætla að fá umfjöllun í blöðum. Það eru mikil skrif milli óskabarnsins og FFF, þar sem fram kemur að meirihluti íslenskra flugmanna óskabarnsins eru aðilar að FFF. Er það rétt? Ég vona að þetta komi enn meira upp á yfirborðið og að óskabarninu verði skilt að fara eftir leikreglum. Borga skatta eins og önnur fyrirtæki, þ.e. af starfsmönnum. Það er jú auðvelt að reka fyrirtæki og greiða mönnum 1000 kr á dag. Það versta í þessu öllu er...

Re: Tegundaáritanir

í Flug fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er á móti þessu rugli að fólk þurfi að kaupa sér tegundarréttindi upp á von og óvon. Mér finnst réttara að flugfélagið sem ætlar að ráða flugmann með tegundarréttindi geri það í samráði við hann og flugskólann. Ef félaginu líkar vel við manninn, væri hægt að skoða hann í flughermi og síðan meta það þá hvort hann sé hæfur til að fara á tegundarréttinda námskeið, þar sem félagið og flugmaðurinn tæku jafnan þátt í þjálfunar kostnaði. Með þessu er félagið að fá mann sem það valdi og...

Re: Æfingaflug

í Flug fyrir 22 árum
Ég held að það sé vegna þess að hjólabúnaðurinn hittar rosalega við svona snertilendingar, og auk þess er enginn þörf á að fljúga hratt í umferðarhring þannig að t.d. á B737 er umferðarhringur floginn á 210 kts undan vindi og þvert af ertu kominn með lágmark flaps 5 og 180 kts. Þetta gerist mjög hratt og hjólabúnaðurinn hjálpar að sjálfsögðu að hægja ferðina. Ég vona að þetta skýri eitthvað út fyrir þig. kv flight

Re: Ráðningar Flugfélags Íslands

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hr. IH8MYX Það er ekki tekið á þessu í kjarasamningum Bláfugls. Þeir geta ráðið útlendinga (JAR) í vinnu til skamms tíma! Enn hvað er skammur tími? Það er einnig talað um að flugmenn sem starfa hjá félaginu verði að vera íslenskir ríkisborgarar, en það stangast á við evrópu lögin og mun líklega verða breytt, þannig að þeir sem eru með skirteini til að starfa í íslensku loftfari geta þá sótt um hjá stéttarfélagi. Flugmálastjórn kemur ekki nálægt þessu ferli, sem betur fer.

Re: Ráðningar Flugfélags Íslands

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
til að leiðrétta þig einstein, þá þarf Bláfugl enga undanþágu fyrir þá erlendu flugmenn sem þeir eru með í vinnu, hvort sem þeir eru að fljúga 737 eða þá sem fara að fljúga 757. Þetta eru flugmenn með Jar, þannig að þeim er frjálst að sækja um vinnu hér. Eitt meiga þeir þó eiga hjá Bláfugli, þeir auglýsa fyrst á Íslandi. Við skulum því bíða og sjá, kannski eru til Íslenskir flugstjórar á 757, hver veit. Enn þú ert með þetta allt á tæru sé ég. Gangi þér vel. ps. ef þú ert með jar þá getur þú...

Re: Iceland Express (skítur)

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
grizzly, auglýsingin hefur gert það sem hún átti að gera. Þú manst þetta ennþá. Þetta er máttur auglýsinga, hún á að skilja eitthvað eftir hjá almenningi. Ég þurfti að fara til BRU frá KEF og til baka. Það var leitað eftir ódýrasta fargjaldi hjá Icelandair, 121.000,- einnig var haft samband við Iceland Express, 29.400,- Í báðum tilfellum þarf að skipta um vél þ.e. samtals 4 vélar. Mér finnst þetta vera dágóður munur. Það sem við erum að sjá er SAMKEPPNI. Gott mál.

Re: Allt að gerast

í Flug fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hefur þú frétt eitthvað af því hvernig Íslandsflug ætlar að ráða, hvar verður heimahöfnin? Það er rétt hjá þér að þeir skulda Bláfugli kannski ekki neitt, en þeir fengu sitt tækifæri þar. Ég myndi vera þakklátur fyrir það, þó að ég borgaði tékkinn sjálfur, þeir þurfa ekki að velja þig þó þú sért með tékk.

Re: Allt að gerast

í Flug fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hefur þú heyrt eitthvað slæmt um Bláfugl? Því ættu menn sem hafa vinnu, að fara eitthvað annað? Ert þú að vinna þar?

Re: Enn og aftur.. ÉG!

í Flug fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þekki ekki Flugsýn eða Gerirfugl, en þekki Flugskóla Íslands. Þar skalltu passa þig á því að hafa allt undirritað þar sem ég hef orðið var við það sjálfur að það stendur ekki steinn við stein hjá þeim ( mín reynsla )

Re: Airbus

í Flug fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ég held að ég verði að vera sammála jmk, ég er að fljúga trapant í dag og líkar það vel, hef ekki prófað airbus. Enn ég hef fengið marga vírusa í tölvuna mína og hún einnig frosið, þá er gott að vera á trabant.

Re: linkurinn er svona-fjan

í Flug fyrir 22 árum, 7 mánuðum
sæll apache, ég hef ekki skoðað þetta á heima síðu FMS, enn kannski maður geri það. Ég persónulega er löngu hættur að trúa á FMS, þ.e. maður fær aldrei sömu svörinn þegar maður kemur þangað, þeir hafa jú JAR til að fara eftir, kannski þeir ættu að lesa hann svo þeir gætu gefið góð svör við þeim spurningum sem þeir fá. Varðandi Fía vs. Atlanta, þá er hægt að sjá þær greinar sem hafa verið skrifaðar um þetta og einnig bréfið sem fór til FMS á fia.is. Höldum þessu áfram og komum sem flestum í...

Re: járnasett óskast

í Golf fyrir 22 árum, 10 mánuðum
er með 2.ára King Cobra Cavity Back sett, graphite sköft. Mjög góðar kylfur. Uppl. í s: 8929500 (Garðar)

Re: Tveir slasaðir eftir flugslys í Hvalfirði

í Flug fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sælir félagar, ég held að allir ættu að fara varlega í yfirlýsingum, þar til búið er að rannsaka þetta slys. Þegar það er búið er um að gera fyrir okkur að nýta þær upplýsingar sem fram koma til þess að læra af þeim. Það er voða auðvelt að sitja heima og dæma, en ég held að það geri okkur ekki að betri flugmönnum. Að sjálfsögðu sendum við bestu kveðjur til þeirra sem um borð voru, um að þeir komist á ról sem fyrst. kv, flight

Re: ...þetta er allt að koma....

í Flug fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mazoo, þetta er góð grein hjá þér. Ég vil leiðrétta þig aðeins. Það er bara einn að vinna hjá Bluebird sem sagt var upp hjá Icelandair. Annars lítur þetta nokkuð vel út, á síðustu tveimur vikum rúmum, hafa verið ráðnir 11 eða 12 manns, sem er jú jákvætt ekki satt?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok