Ég er nú nokkuð sammála ykkur varðandi líkingu Albus Dumbledores og Gandalfs… Mér finnst þó ekki endilega að Rowling á að hafa “hermt eftir” Tolkein með Dumbledore, þvert á móti í rauninni. Þetta bókmenntaminni um gamlan vitran seiðkarl er þekkt í bókmenntum og þá sérstaklega í ritun ævintýra allt frá byrjun sagnaritunar… Hér er ekki neinn að herma eftir neinum í þessum málum. Ævintýrasögur, og í raun allar sögur, líkjast allar hverri annarri á einn eða annan hátt, og þar með ýmsar persónur...