Það er víst að það eru misvandaðir menn til í heiminum. En það var um daginn brotist inn í Húsið (Dynheima) á akureyri um daginn og þaðan var stolið meðal annars Svörtum Jackson Kelly 7string sem var í eigu Gústa fyrrum meðlim Nevolution. Þetta er það lægsta sem hægt er að leggjast. Ef einhver rekur augun í eitthvað sem bendir til þess að um sé verið að ræða þennan gítar þá látið lögreglu vita. Það getur varla verið erfitt að greina hann og gæjinn getur varla farið að selja hann því að þetta er eini svona gítarinn á landinu.
Þetta er samt ekki í fyrsta skiptið sem það er brotist inn í Húsið, og þar sem húsið er að flytja í nýtt og betra húsnæði þá finnst mönnum sniðugt að brjótast inn og stela því sem hendi er nærst.
Endilega hafið augun opin.
Takk
Unas Hath Taken Possession of the Hearts of the Gods.