Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

flat6
flat6 Notandi frá fornöld 586 stig
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96

Re: Vantar svör um bílinn...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég held að sé tímakeðja í þeim , ekki reim. Samt á maður að athuga þetta.

Re: Pirr Factor

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er svo sammála þér með þetta!! Mest fer samt í taugarnar á mér það fólk sem ( í t.d. föstudagsumferðinni) tekur sér bara sinn tíma í að klára tala í símann sinn og er ekkert að stressa sig við að koma sér af stað þegar kemur grænt ljós, og keyrir svo lúshægt yfir gatnamótin til að tryggja það að aðeins örfáir komast yfir gatnamótin í einu! Og svo strætóinn, ég lenti næstum í slysi um daginn, munaði mjög litlu.

Re: Renault Clio Sport 172

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já, ég keyrði nokkrum sinnum 968 bílinn sem er hér á landinu og ætlaði að kaupa hann. Ég hefði sennilega keypt hann ef minn hefði komið úr sprautun. En það var bara gott að maður keypti hann ekki, ég frétti af því að vélin hefði farið í honum og varahlutirnir sem voru pantaðir í hann kostuðu 300þús… Annars langar mig að flytja inn svoleiðis bíl.

Re: Renault Clio Sport 172

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er ekki club sportinn bara framleiddur í örfáum eintökum? Og fokdýr þá.

Re: 10 bílar sem vantar á íslenskar götur.

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
MInn er líka djöfulli lár, ég kem ekki hnefanum undir svuntuna að framan, hann er lægri en bmwZ3!

Re: 10 bílar sem vantar á íslenskar götur.

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þessi er hér: http://www.porsche-island.is/Gallery/993/993_00 1.jpg

Re: 10 bílar sem vantar á íslenskar götur.

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er EVO hér á landinu?? Í rvk? Ég hélt að það væri enginn… örugglega gaman að leika sér á svoleiðis;)

Re: Jólatré fjúka á bíla....

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég fékk líka jólatré í hliðina á bílnum mínum. Mér var alveg sama… ég var á hyundaiinum:) En þetta er slæmt mál samt, það kostar nú ekki lítið að láta gera við svona lakkskemmdir!

Re: Hrafnaspark um V-tec....

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þess vegna held ég að varicam kerfið, sem virkar mjög svipað en nær yfir allt snúningssvið vélarinnar, sé skemmtilegra. Þá þarftu ekki að vera með vélina á hvínandi snúning alltaf.

Re: Renault Clio Sport 172

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Boxterinn er samt slappastur í bremsunum frá þeim. Ég sat í '01 911GT2 og fékk að finna fyrir bremsunum! Það var eins og að keyra á steinvegg!!

Re: Renault Clio Sport 172

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Maður fer allavega á brautina einhverntíman. Bíllinn er ekki nema 163hö núna en tölvukubburinn er á leiðinni og fer strax í, svo er í honum kraftloftsía. Ég veit ekki hvað eða hvort hún bætir einhverjum krafti… en hún breytti þó hljóðinu helling. Það eru þvílík læti inní í bílnum. ég fann þetta á www.flat-6.net: http://www.flat-6.net/view.php?model =944&sel=944+(1989)&tab=spec 0-60 mph 7.5 seconds 0-1/4 mile 15.7 seconds ég veit ekki hvað er að marka þetta

Re: Sjúkur bíll!!!!!

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
þessi bíll er á 2,5 hingað kominn!!! sem er ekkert mikið.

Re: Renault Clio Sport 172

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Fín grein og nettur bíll! Það væri gaman að taka spyrnu við þig einhverntíman;) ég veit ekki hvað minn nær… hann á þó að vera ca 186hö þegar hann kemur á götuna.

Re: M.Benz

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er einmitt að reyna kaupa mér svona kerru. Ég þekki einn man sem á svona bíl oh hann sagði mér að þeir bila venjulega ekki mikið, auðvitað er alltaf eitthvað viðhald á svona gömlum bílum. Hans bíll er keyrður 290þúskm og er í fínu standi. Varahlutirnnir í þessa bíla eru ekki dýrir og þeir eyða ekki miklu.

Re: Hrafnaspark um V-tec....

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er kannski helsti gallinn við v-tec að það er nánast bara on/off, það kippist alltíeinu inn á ákveðnum snúning. Þannig að þú þarft að gíra niður og ná bílnum á hvínandi snúning til að ná aflnu úr mótornum… Ég held að vél sem er með variocam kerfinu sé skemmtilegri að keyra.

Re: Tímabilið 2004

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já ég er líka spenntur að sjá hvernig mclaren eigi eftir að ganga. Hefur ekki gengi nógu vel síðustu ár…

Re: Sjúkur bíll!!!!!

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta eru massífir bílar! Pabbi á svona og ég hef oft fengið hann lánaðann. En það er bara venjulegur 928S4. Það er hægt að gera þessa bíla svo skuggalega flotta! Þessi er mjög reffilegur… og á sæmilegu verði.

Re: Sjúkur bíll!!!!!

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hmmm. það er nu spurning;)

Re: Munaði mjóu...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
On off rofi í mælaborðinu… það er málið. Þá þarf maður ekki að vera vesenast með að taka öryggið úr, eða rely-ið.

Re: Munaði mjóu...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sama hér, ég mun ekki kaupa mér toyotu næstu ár allavega. Þetta eru kannski ágætis frúarbílar;) ekki meira en það…

Re: Á einhver hægri framspyrnu í Accent?

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Eins og mmccolt segir þá held ég líka að passi úr colt eða lancer. Annars var ég að leita að gírkassa í minn bíl um daginn og þræddi allar partasölur í rvk og komst að því að VAKA á til einn hyundai accent. Þú gætir talað við þá…

Re: Munaði mjóu...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég skil ekki hvað er verið að hafa skálabremsur að aftan á svona nýjum bílum. Ég hefði nu haldir að flestir vildu eyða örlítið meiri pening þegar bílarnir eru keyptir nýjr og hafa þá alvuru bremsur á þeim. Það er kannski ekki ætlast til að toyotur séu til að vera keyra hraða en 100kmh.

Re: M. Benz 190E Sportline 2.3 93 árgerð

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er leður? Beinsk eða ssk?

Re: Munaði mjóu...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Akkurat! Ég lenti í því á yaris á 90km hraða… og flaug útaf á ca. 80kmh! Munaði litlu að hefði orðið slys. Ég viðurkenni það samt alveg að ég var auðvitað að keyra hratt miðað við aðstæður en var alveg með fulla stjórn á bílnum þangað til ég stíg örlítið á bremsuna og hann læsir að aftan og þetta eru svo stuttir bílar að ef hann kastast til þá eru þeir búnir að snúast áður en maður nær að snúa stýrinu á móti.

Re: Munaði mjóu...

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Bara on off takki, það er komið í suma bíla. Ég er feginn að það sé ekki abs í mínum bílum. mÉr finnst ekki gott að hafa það, það er gott fyrir þá sem hafa enga tilfinningu fyrir þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok