Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

G3 (4 álit)

í Rokk fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Smá pæling Hver hérna myndi fara á G3 ef þeir kæmu hingað? .. og hverja mynduð þið vilja sjá spila?

Daemon Tools 4.09 (13 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvernig installa ég nýjasta Daemon Tools(4.09)? Kemur bara “this platform is not supported” þegar ég ætla að installa. Ég er búinn að googla þetta allt saman fram og til baka, en gengur lítið. Er ekki einhver sem kann á þetta?

Urrrr... (30 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvað er þetta með orðið eitthver, nú til dags? Það er útum allt…

Gareth Bale (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Vilja United menn hér á huga fá hann þangað? Annars var víst búið að bjóða enn hærra í hann frá einhverjum “ónefndum klúbbi”, samkvæmt BBC. Ég held nú samt að Ferguson geti alveg fengið hann ef hann kærir sig um það og mig grunar að hann muni enda þar… Er það bara rugl í mér eða?

I Shot The Sherriff (9 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hver samdi það upphaflega..?

Völkerball (9 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Gaman að segja frá því að þann 20. nóvember næstkomandi eru hjartaknúsararnir í Rammstein að fara að gefa út nýjann dvd-disk.. sem mun bera nafnið Völkerball, og ef þetta verður eitthvað í líkingu við Live Aus Berlin er ég nokkuð viss um að það verði við miklu að búast. Enda eru þeir alveg ótrúlegir á sviði. Er fólk eitthvað spennt fyrir þessu? Eða er ég kannski sá eini sem hlustar ennþá á þessa gaura..?

Rangur Maður (9 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Einhver hérna sem kann hljómaröðina í hinu víííðfræga þjóðhátíðarlagi Rangur Maður?

Terry Reid. (5 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég var að lesa um þennan söngvara, og ég varð bara að segja frá þessu. Árið 1968 hafnaði hann Jimmy Page um að syngja í nýju hljómsveitinni hans, The New Yardbirds, sem síðar urðu að Led Zeppelin! Hann getur ekki verið mjög sáttur með það í dag. En það var ekki allt. Tvem árum síðar fékk hann annað tækifæri, þegar Jon Lord bauð honum að koma og syngja fyrir Deep Purple! Hann hafnaði þeim líka. Ég vorkenni honum…

Led Zepagain (10 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Hér er ég með myndband með þónokkuð viðurkenndri Led Zeppelin cover-hljómsveit, sem kalla sig Led Zepagain. Sumir hérna kannast kannski við þá. Sjálfur finnst mér þeir svona sæmilega hallærislegir, og svo eru þeir að reyna alltof mikið. Ég skil heldur ekki hvernig þeir geta þetta, ég gæti aldrei haft það að atvinnu að reyna eins vel og ég gæti að líta út eins og einhver annar. Sérstaklega þegar þeir vilja líta á sig sem tónlistarmenn. En það er auðvitað bara mín skoðun. Verð líka að taka það...

Brain Police (3 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Vá hvað Brain Police voru góðir á Dalvík um helgina!! Allt alveg 100% Annars finnst mér alveg ótrúlega skrítið hvað í ósköpnum þeir voru að gera á litla sviðinu… Einhver hér sem sá þá?

Kingstone (4 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Eru þeir hættir eða? Hef ekkert heyrt af þeim svo lengi, og samkvæmt heimasíðunni þeirra hafa þeir ekkert spilað síðan í nóvember.

Tuning (12 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvað heitir þetta…? D# A# F# C# G# C# Þetta mun vera tunið sem notað er í Bloodline með Slayer. Það væri ekki verra ef einhver gæti sagt mér hvað þetta er kallað

Nick Cave (1 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Uppselt á tónleikana eða?

Gaman að segja frá þvi... (3 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hver hérna vissi að þegar Frank Zappa var á unglingsárunum var eitthvað vandamál með svitaholurnar á honum, svo það þurfti að setja litlar málmkúlur upp í nasirnar á honum, til að kanna þetta eitthvað haha. Ég vissi þetta a.m.k. ekki. En ef einhver var að spá þá sá ég þetta bara á wikipedia.

Ring of Fire (8 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Í hvaða tóntegund er Ring of Fire með Johnny Cash?

Svona er sumarið (2 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Einhver sem getur sagt mér lögin og artistana á Svona Er Sumarið 2006 disknum?

Hendrix (4 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvað tók hann upp margar plötur á meðan hann var lifandi

Jahá!! (20 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 9 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1209960;rss=1 Ég vildi bara vita, hvað er verið að hleypa sjö ára krakka í rússíbana sem “þýtur úr 0 í 100 kílómetra hraða með afli F-14 þotu”. Er það ekki helvíti mikið miðað við þennan aldur? Skil þetta bara ekki!

Nick Cave (10 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvenær eru tónleikarnir??

Bowie myndin... (9 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Fyrir þá sem ekki höfðuð fattað það, þá er þessi mynd af David Bowie ekki af Ziggy Stardust, eins og hér um bil allir höfðu sagt (þ.á.m. ég). Þetta er bara Bowie sjálfur að syngja í Rebel Rebel myndbandinu. Varð bara að taka þetta fram.

Status Quo (12 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Mér finnst nú vanta slatta umfjöllun um þá. Eins og þetta er nú (allavega að mínu mati) frábært band. Er það ekki annars?

Sticky keys (34 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Haaata þá. Enginn tilgangur með þessu, whatsoever!! Hvað finnt ykkur um þessa umdeildu uppfinningu?

Live (15 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég hef verið að taka eftir því nýlega, að live plötur eru aldrei að fá jafngóða dóma og stúdíó plötur, sem fékk mig til að hugsa… hver er besta live plata sem þið hafið heyrt, gullaldar að sjálfsögðu, og er hún að jafnast á við, betri stúdíó plötur þessar sömu hljómsveitar?

Ze könnun (5 álit)

í Jazz og blús fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Er reyndar ekki vanur að gera svona könnunar korka, en hefði ekki verið þægilegt að hafa bæði í þarna Lois Armstrong dæminu? Mér finnst hann alveg jafnt af báðum, og hlutlaus er ekki alveg að gera sig, því að ég hef skoðun á þessu, og það er að mér finnst hann bæði, svo ég held að þið skiljið þetta… Edit takkinn myndi nú koma sér vel núna ha..?

Trabant (5 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Hvað heitir aftur lagið sem Trabant eru að spila í Rvk Rokkar auglýsingunni?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok