Ok, ég skal viðurkenna að ég hef engar heimildir fyrir því að hann sé ekki að semja nýtt efni, en síðan verður líka að koma fram að hann er búinn að hanga í sömu lögunum í allt of langan tíma t.d. November Rain, Welcome to the Jungle, Paradice City, Sweet child´o´mine og fleiri. Ég er nokkuð viss um að allir hæfileikar hljómsveitarinnar til að semja nýja tónlist fóru í vaskinn þegar hún breyttist. Er hann ekki líka búinn að vera að fresta því að gefa út nýju plötuna í fimm ár eða eitthvað?...