Það voru ekki margir sem þorðu að spá því að samstarf söngvarans Scott Weiland við fyrrum meðlimi Guns N'Roses myndi ganga jafnvel og raun ber vitni undir nafninu Velvet Revolver. Gítarleikarinn Slash tjáði sig nýlega um sveitina sem hefur verið á tónleikaferðalagi um heiminn og hyggst fara í hljóðver um leið og því ferðalagi lýkur. Nóg sé til af lögum, stemningin sé frábær og enginn tími til slugsa og eyða tímanum í vitleysu enda allir meðlimir stakir bindindismenn!