Gaur…láttu þetta bara gerast náttúrulega. Þið eruð kannski á einhverjum viðburði og eftir hann eruð þið að samferða heim, þú segist kannski ekki nenna strax heim og segist ætla að fylgja henni í staðin. Láttu þetta byggjast upp smám saman og svo einhvern tíman kemur móment og þegar mómentið kemur þá veistu það og þá áttu að KYSSA HANA!
Dude. Ég er með frekar svipuð gleraugu og hvað sem allir aðrir segja þá ef að þér finnst þau töff vertu með þau. Mín skilgreining á töffara er manneskja sem fer eftir sinni eigin sannfæringu óháð því sem allir aðrir segja. Þú ert rosalega sæt. Fyndið samt ósamræmið milli hársins þíns og gleraugnanna…eða svona blanda af tveimur stílum fattaru..frekar kúl sko.
Haha. Búin að auglýsa tvisvar, ekki tíu sinnum. Kodak á Íslandi selur ekki stök hleðslutæki og já ég er búin að reyna BT, Elko og ect. Svo sé ég ekki betur en að þetta sé internetið. Myndi ekki vera svona hrikalega dónalegur í þínum sporum, græðir ekkert á því.
Það er eitthvað rósabú uppi í Mosfellsdal sem að selur þér tvo stóra ruslapoka af rósum á 3000 kall. Æði sko. Fullt af svona ræktunum bjóða upp á þannig afskorin blóm. Þú verður að rífa blöðin af sjálfur en það verður þess virði.
Pakkalitir eru ágætir en þeir breytast oft í þér með tímanum og efnablandan festist alveg hrikalega mikið í þér, það er að segja að ef þú villt breyta litnum þínum á stofu í framtíðinni t.d. lýsa hann eitthvað verður hárið alltaf örlítið kaflaskipt (eins og þú sért með stærðar rót sem er öðruvísi á litin en nýlitaða hárið). Ég var alltaf voða mikið í að lita á mér hárið, alltaf að skipta og ekkert hrædd við pakkaliti og fór alveg hrikalega illa með hárið. Núna er ég að lita hárið í mínum...
Hún er svo svöl! Miklu sætari en Katie og æðislegur karakter í þokkabót með brjálæðislega svala rödd. Finnst karakterarnir í þriðju seríu miklu skemmtilegri heldur en í hinum tvemur þó að Cassie hafi verið epic.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..