Sælt veri fólkið

Ég er kornungur drengur í 10.bekk Grafarvoginum og er hrifinn af frábærri og skemmtilegri stelpu og svoleiðis er mál með vexti að ég hef ekki hugmynd um hvort hún sé hrifin af mér eða ekki.
Stundum veitir hún mér mjög mikla athygli og við tölum mikið saman og smá svona flirt í gangi en svo allt í einu er eins og ég sé ekki á staðnum, ef fólk veit hvað ég meina.
En já to the point.. ég tók þá ákvörðun í gærkveldi að keyra bara á þetta, taka áhættuna og bjóða henni í bíó eða eitthvað svoleiðis sem sýnir fram á það að ég sé hrifinn af henni.
Hvað ert álit ykkar á þessu, Hugarar?
og hvernig ætti ég að fara að þessu og hvert ætti ég að bjóða henni (bíó, heim að horfa á mynd, ís eða whatever)


Fire away!
Halló, ég heiti Lambaspörð og ég er facebookisti