Ja hérna, svo bregðast krosstré sem önnur, Cornholio snappaði barasta út úr dulargervinu. Og tók svo allt aftur. Annars var þetta allt rétt hjá honum, kynslóðin sem fædd er eftir 1976 hefur ekki staðið sig, (já, ég veit um einn sem fæddur er 1978 en sá stóð ekki undir væntingum). Mér sýnist þó vera nokkur von í strákum sem fæddir eru 1986-1990. Þeir hafa verið að sýna ágæt tilþrif í vetur og ég veit að það er vilji hjá júdósambandinu að reyna að byggja upp alvörujaxla aftur.