Rut kjörin íþróttamaður Þórs Grein fengin af Taekwondo Ísland heimasíðunni (www.taekwondo.is)

_________________________________ _____________
Rut kjörin íþróttamaður Þórs

Rut Sigurðardóttir tvöfaldur Norðurlandameistari var kjörin íþróttamaður Þórs í gær. Rut sem hefur staðið sig ótrúlega vel síðustu misseri átti titilinn fyllilega skilið, en hún átti þó í baráttu við engan annan en evrópumeistarann Árna Sigtryggsson handknattleiksmann um kjörið. Rut hefur einnig verið valin Taekwondokona ársins hjá Taekwondodeild Þórs. Að lokum má þess geta að Rut er númer tvö á styrkleikalista TKÍ.

Texti: Erlingur Jónsson

Upplýsingar: Þórdís Úlfarsdóttir og Heimasíða Þórs
Myndirnar eru birtar með leyfi Íþróttadeildar Þórs.

www.taekwondo.is