ég get bara sagt eitt: FORÐASTU Passatinn, ég var að losna við minn sem var 1800 Turbo, árgerð 2000. Þetta ökutæki gerði ekkert nema að bila í minni eign, var ekinn rétt um 10.000 km þegar ég fékk hann. Sífelldar rafmagnsbilanir, læsingarnar, ljósin, hjöruliðskross. Alltaf var helvítis Hekla með skítkast útí mig og reyndust mér mjög illa. Vegna þessa ætla ég ekki að kaupa bíl frá Heklu, eða VW Group aftur. Taka Mondeo, gott umboð, flott look og mjög gott að keyra hann með 2000 vélinni.