Well, foreldar mínir áttu einu sinni Toyota 4Runner V6 Bensín Sjálfskiptur árgerð 1992. Sá bíll eyddi 20-24 L í innanbæjarakstri. Ótrúleg eyðsla. Að lokum fór þetta með fjárhaginn hjá þeim gömlu, olli skilnaði, ég leiddist út í óreglu og er að rétta mig við… Hata 4Runner.
já, það er reynsla mín allavega. Vinur minn keypti sér Opel Vectra 2,0 CD nýjan árið 1998 og það var alltaf eitthvað basl með vélina í honum. Hann er búinn að kosta miklu uppá þennan bíl sem er í þokkabót byrjaður að ryðga á miðri bílsstjórahurðinni. Ekkert spes að keyra þessa bíl og mæli alls ekki með þeim. Nýi er samt örugglega orðinn góður.. “Ég er að fara hérna yfir mikilvægt atriði á töflu og þú situr bara hér og teiknar bíla” - María Norðdahl, stærðfræðikennari úr grunnskóla
Það er nú ljóta pakkið sem er til á þessu landi. “Ég er að fara hérna yfir mikilvægt atriði á töflu og þú situr bara hér og teiknar bíla” - María Norðdahl, stærðfræðikennari úr grunnskóla.
ég vildi það gjarnan, en þau gömlu búa á litlum stað úti á landi í ca 700 km frá Reykjavík.. :(. Auk þess er sá fjólublái kominn í sitt vetrarfrí(númerin lögð inn á veturna) og kemur ekki á götuna aftur fyrr en næsta vor. Synd.
jú, hér er verið að ræða um M5-inn hans pabba svo ég get eitthvað upplýst. Það er búið að grafa það upp að þessi M5 er upprunalega fjólublár. Í sambandi við verðið þá setti Toyota 2.750.000 kr á hann en hann fór skömmu seinna á tilboð sem var 2.200.000 kr. Pabbi bauð 2 milljónir og á endanum fékk hann á eitthvað rétt rúmar 2. Sem var náttúrlega kostakjör á þeim tíma. Og sá fjólublái er örugglega ekkert síðri en þinn bebecar, hann er ekinn rétt um 100.000 km og það fannst viðhaldsbók sem er...
Já, ég er sammála Betu. Greinarskil eru líka mjög sterkur leikur í ritdeilu. Annars fer þetta allt í einn graut og verður mjög erfitt að lesa og hvað er ,,,þetta,,,,,,??? Er komman á lyklaborðinu hjá Einari sem sjálfstætt líf??
Eina sem ég veit er um bílinn. Þetta var nefnilega nágranni vinar míns sem átti bílinn, veit ekki hvort hann var að keyra, en þetta var svona ljósgrænn Toyota Avensis Liftback 1600 árgerð 1998 og var sérlega hallærislega skreyttur með svona skrípó-límmiðum útum allt og var stundum á rauðum hjólkoppum!! Þetta er svona fólk af erlendu bergi brotið sem átt bílinn og hann var víst þekktur í hverfinu fyrir að keyra hratt.
það skiptir nákvæmlega engu máli hvort felgurnar hafi verið skemmdar fyrir.. Hefði hann verið á nýjum felgum hefði þetta ekki gerst?? Það er bara að viðurkennar mistökin. Ef það hefði verið nóg pláss hefði aldrei neitt gerst.. right?
ef hann hefði ekki nauðhemlað hefði hann ekki misst stjórn á bílnum og það hefur varla verið nóg pláss fyrst octavo segir þetta. Það þýðir ekkert fyrir ökumanninn að ljúga sér út úr þessu. Greinlega vanhæfu
jonr þú hefur þá ekkert erindi inná áhugamálið Jólin. Ekki hangi ég á Star Trek áhugamálinu og segir að þar séu allir lúðar, þó það sé mín skoðun. Þetta voru bara vinsamleg ámæli (?) frá StarCat og það er engin í fýlu. Gleðileg jól
hann var náttúlega ekki lítið yfir hámarkshraða heldur að amk 140, í fréttum Stöðvar 2 var sagt allt að 190 km/h. Mér finnst ekkert athugavert að dæma hann fyrir manndráp af gáleysi og svipta hann ökuréttindum allvega í 10 ár.
Toyota Carina E 2,0L er mjög góður og rúmgóður fjölskyldubíll. Ég hef átt svona bíl sem var mikið ekinn og hann reyndist frábærlega. 2 vinnufélagar mínir eiga svona bíla núna, annar árgerð 93 og hinn 94 og þeir eru mjög ánægðir með þá. Verst er að 93-95 árgerðir sjást lítið á bílasölum, en það er bara málið að vera með augun opin. Pottþéttir bílar með lága bilanatíðni, eða svo er mér sagt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..