Núna er ég að spá í að kaupa mér bíl. Nýbúinn að selja gamla bílinn minn og er mikið að athuga þann möguleika að flytja inn bíl frá Þýskalandi.
Í þeim efnum er Audi mér ofarlega í huga. Audi A6 95-97, 2.6 l í minnsta lagi eða 2.8 l og helst Quattro. Audi A4 með 1.8 Turbo vél, frábært að fá Quattro, mundi ég fá ódýrara vegna tolla en samt fá nægan kraft. Audi S4 og S6 92-94 líta alveg eins og A6 95-97. S4 með 2.2 l Turbo vél, 6 gíra, 230 hö og 4x4. S6 með stærri vélar, sjálfskiptingu og dýrari. Ég vill nánast útiloka sjálfskipta bíla samt. Mig langar líka mikið í Audi A8, þeir eru hrikalega ódýrir í Þýskalandi miðað við hvað þeir eru dýrir hérna heima.
Ég er líka að spá í Saab 900 2.0 Turbo. Fínn kostur vegna tolla og tryggingamála. 185 hö og nóg af togi. Ég er samt ekkert rosalega æstur í þennan afturenda og ég er svolítið hræddur um bilanatíðni í svona bíl því ég hef ekki áhuga á að eiga Saab sem verður til vandræða. Þá fyrst er maður í vandamálum. Síðan verður varla hjá því komist að spá í Saab 9000 Aero 92-95. Sama málið með afturendann, ég er ekki hrifinn af honum. Einnig spái ég mikið í innréttingum, því það er jú það sem ökumaðurinn sér oftast en ekki ytra útlit bílsins og er því nauðsynlegt að honum líði vel þar inni og líki vel við innréttinguna. Saab er með fallegar innréttingar.
Þriðja merkið sem ég er að pæla í er MB. Þá helst C200, ekki verra að hafa stærri vél, þó það sé kjánalegt að eiga Benz með 2 lítra vél. En ég meina, þetta er Benz. Ég þarf ekki að eyða orðum í að tala um Benz.
Nú er ég að spurja hvort þið hafið reynslu af þessum bílum eða getið eitthvað tjáð ykkur um þessa bíla, galla, kosti, ykkar skoðanir, aðrar bíltegundir, sagt brandara eða eitthvað gáfulegt.
Hérna fylgja linkar á nokkra bíla.
Audi A4 Turbo
Audi S4
Audi S6 4.2
Saab 900 Turbo
Benz C200