Hvaða týpu af TR ertu með, því það eru til nokkrar gerðir? Það eru alla vegana til TR 50, 70 og 300 ef ekki fleiri. En þetta eru svona ódýrir (ekki að það sé slæmt) bassar og þeir dómar sem ég hef séð um þá er að allir eru frekar ánægðir með bassann sem fyrsta bassa, sérstaklega TR 300 bassann. TR týpan er ekki lengur á lista hjá Ibanez á heimasíðu þeirra þannig að ég býst við að þeir séu ekki lengur í framleiðslu. kv einmitt