Ég er sammála tmar, það er fullseint í rassinn gripið. Fín hugmynd en tekur nokkra mánuði í framkvæmd. Fyrst þarf að velja ljóðin, fá leyfi höfundar (það getur tekið þónokkurn tíma), prófarkalesa, setja í umbrot, prófarkalesa aftur, hanna kápu, setja í prentun, bókand og margt fleira áður en farið er í markaðssetningu. Og ljóðabækur mala ekki gull, því miður. Það er enginn sem gefur út ljóðabók til að græða og verða ríkur. Hins vegar er þetta snilldar hugmynd og rétt að fara að huga að henni...