Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Ef markmiðið er að þröngva aðra til að fara einhverja ákveðna leið í eigin lífi, þá er það að sjálfsögðu kúgun. Kúgun sem þú talar svo mikið gegn.” Það er ekki það sama að rökstyðja tilvist laga í samfélaginu eins og að kúga fólk með að þröngva skoðunum sínum á það. Ég get með alveg jafn miklum rökum stutt umferðarlög og lög gegn vopnaburði flugfarþega, án þess að það væri neitt frekar eða síður átroðningur minna lífsskoðana á fólk. Við getum einfaldlega ekki lifað í anarkísku samfélagi af...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Auðvitað ertu að troða þínu siðferði upp á aðra, alveg eins og þitt siðferði sé eitthvað betra og á hærra plani. ” Ég er ekkert að troða einu eða neinu siðferði á neinn. Það eru til allskonar lög í landinu sem byggja á siðferðisvitund almennings og þetta eru bara ein af þeim. Það má vera að þú sért ekki sammála einhverju af þessum lögum, en hvað þessi lög varðar þá verðum við að pæla í öðrum og merkilegri hlutum en siðferðisboðskap. “Auðvitað ertu að troða þínu siðferði upp á aðra, alveg...

Re: Vændi = atvinna

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Til að byrja með þá langar mig að taka það fram að ég hef aldrei haldið því fram að til sé hin hamingjusama vændiskona enda skiptir það ekki öllu máli. ” Það er mjög gott að þú heldur því ekki fram. Hins vegar eru margir skoðanabræður þínir á því að tilhneiging femínista og annarra til að líta á vændiskonur sem óhamingjusama einstaklinga í vanda sé bara útaf því að þær séu teprur og afskiptasamir. Og svo draga þeir upp mynd af hinni fullkomlega hamingjusömu og meðvituðu hóru sem stundar...

Re: Vændi = atvinna

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
zillius, þú lifir eflaust í draumaheimi þarsem allar vændiskonur eru hamingjusamar yfir hlutskiptum sínum. Veistu hvað þú ert þá að gera? Þú ert að loka augunum fyrir jafn augljósum staðreyndum og þeim að himinninn er blár og að sjórinn er saltur. Því að það er staðreynd að vændiskonur upp til hópa eiga við félagsleg vandamál á borð við eiturlyfjaneyslu, sögu um misnotkun, fátækt og annað fleira. Og áður en þú ferð að agnúast út í femínista skaltu byrja á að læra að stafa þetta orð....

Re: Branda/ Brandur

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég held að fresskettir strjúki ekkert frekar en læður nema kannski ef þeir eru ógeldir og ég tala nú ekki um óánægðir á heimilinu. Hvað var kisan gömul þegar þið komust að því að hún var fress? Voruði ekkert búin að fara með hana í skoðun hjá dýralækni?

Re: Þjóðarstolt- rétt eða rangt?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Í rauninni eru álíka rétt að stimpla alla þjóðernissinna sem rasista eins og að stimpla alla vinstri menn sem kommúnista og alla hægri menn sem nasista. Nú eða saka alla femínista um að hata karlmenn. Fólk verður að greina kjarnann frá hisminu! Góð grein hjá þér.

Re: Er þetta ekki gengið of langt??????????

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Eins og ég tók fram þá hafa femínistar ekkert löggjafarvald og geta því ekkert bannað eitt eða neitt. Og fyrst þú kennir þeim um að mega ekki sýna þig á nærfötum þá gætirðu allt eins kennt þeim líka um verðbólgu, fíkniefnamisnotkun og slæmt veðurfar, það er álíka gáfulegt og ýmislegt viðrist stefna í það. Annars held ég að aðalástæðan fyrir því að þú megir ekki stripplast um á nærfötum á sviði hljóti að vera sú að þú sért undir lögaldri. Það vill enginn sjá unglinga á nærfötunum fyrir framan...

Re: Er þetta ekki gengið of langt??????????

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er sammála krizza. Það eru einhver hægri öfga öfl í gangi í landinu sem virðast aukast og aukast. En “öflin” eru ekki sterkari en svo að þau standa fyrir hálfgerðum hræðsluáróðri gagnvart femínistum. Fólk er allt í einu farið að trúa því að femínistar hafi löggjafar, framkvæmdarvald og dómsvald og sé að reyna að éta fólk upp til agna. Hversu langt á þetta að ganga? Bráðum verður femínistum kennt um verðbólgu, atvinnuleysi, fíkniefnamisnotkun og jafnvel slæmt veðurfar.

Re: Hvernig ert þú á djamminu???

í Djammið fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er blanda af námsmanninum, súpergellunni og sníkjudýrinu. En hið síðastnefnda er ég bara þegar ég er komin á 17.glas, á ekki meiri pening og vantar alveg nauðsynlega meira brennivín… Skemmtileg pæling hjá þér annars!

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já ég má hafa mínar skoðanir og þú mátt hafa þínar og það er allt gott og blessað. Þú gefur kannski skít í mínar skoðanir en þú hefur líka lýðræðislegan rétt til þess. En þegar ég held því fram að það sé full ástæða til þess að koma í veg fyrir aukna eftirspurn á vændi byggir það mun frekar á staðreyndum úr vændisheiminum heldur en skoðunum eins eða neins. Því að ég hef ekki heyrt neinn neita því að þessi vandamál séu til staðar og meira að segja þegar kemur að meirihluta vændiskvenna. Samt...

Re: Íslensk Sakamál; Þvinguð til vændis til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
ég veit að réttlætinu er því miður ekki alltaf fullnægt innan dómskerfisins… ætlaði ég að segja.

Re: Íslensk Sakamál; Þvinguð til vændis til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Willysutton Ég veit það að réttlætinu er því miður ekki alltaf funllnægt innan dómsmeðferð; hvorki ég né þú getum verið 100% viss um að fá réttláta dómsmeðferð ef á okkur er brotið, og ekki heldur vændiskonur. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því. Ég var meira að velta þessu fram sem spurningu, það er ef við lögleiðum vændi og í kjölfar þess kæmu þessar 100 austurlensku konur til landsins útaf kúgun annarra, og einungis ein þeirra fengi óréttláta meðferð af hálfu dómsvaldsins, er þá sýnt...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Takk fyrir Urf þetta er nákvæmlega það sem ég var að fara að segja. Öllum þessum ágætu mönnum sem eru hér að tjá sig um ágæti vændis og mikilvægi lögleiðingar þess er velkomið að gera lítið úr mér og kalla mig þeim nöfnum sem þeir vilja. En það sem ég er að koma á framfæri er ekki bara mínar persónulegu skoðanir, heldur grundvallarhugmyndir og rök fyrir því af hverju bann við kaupum á vændi hlýtur að vera nauðsynlegt til verndar fórnarlömbum þeirra ömurlegu fylgifiska sem það hefur, og af...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Armon þú átt hrós skilið fyrir það að hafa beðist afsökunar á ómálefnalegu skítkasti. Það er nokkuð sem vantar verulega upp á að aðrir geri líka. En ég er svo róleg að það hálfa væri passlegt. Ég vil líka taka það fram að Svíþjóð er ekkert paradísarland í mínum augum, ég bjó þar sjálf, en af ýmsum erfiðum kostum get ég samt ekki séð betur en sænska leiðin sé sú skársta. Þú nefnir þetta með undirheimana, en málið er það að ef við ætlum að hafa lög í nafni frelsis til þess að leyfa fólki að...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Ef eina raunverulega aðferðin til að vernda erlendar vændiskonur er að banna sölu á því” Ég meinti banna KAUP á því

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er oft mjög gáfulegt og greindarlegt að boða frjálslyndi í viðskiptum og frelsi til að bjóða upp á hvaða þjónustu sem er í krafti markaðshyggjunnar. Ég deili ekki um það. Það sem ég er að gera athugasemdir við er hvað þú og skoðanabræður þínir og -systur vanmetið staðreyndir þegar kemur að vændi. Af hverju í ósköpunum eruð þið að berjast fyrir lögleiðingu á kaupum á vændi í krafti einhverrar verndar sem því fylgir, þegar það er augljóst mál af reynslu annarra landa að það eina sem...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Það er ekki vandamál þeirra sem bjóða vændi á löglegan hátt, og vægast sagt ósanngjarnt að troða á heilli starfsstétt vegna möguleika á ósiðlegu athæfi. Það þarf að færa sönnur á slíkt í hverju tilviki.” Einmitt það þarf að færa sönnur á slíkt. En það er það sem hefur reynst svo erfitt þarsem vændi hefur verið lögleitt í þeim góða tilgangi að hjálpa þeim sem það stunda. Það er oft á tíðum svo erfitt að sanna kúgun og mannsal, þannig að slíkir glæpir, sem fylgja jú vændi meira en öllum öðrum...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Vá þrjú svör. Nú er gaman hjá mér. Það voru greinilega mistök hjá mér að segja “mín persónulega skoðun” og ég skal ekki nota slíkt orðalag aftur. En rökin mín sem ég færði fyrir því að vændi skyldi vera bannað standa, og eiga fyllilega rétt á sér, enda margir sammála þeim rökum. “Það er ekki vandamál þeirra sem bjóða vændi á löglegan hátt, og vægast sagt ósanngjarnt að troða á heilli starfsstétt vegna möguleika á ósiðlegu athæfi. Það þarf að færa sönnur á slíkt í hverju tilviki. Eigum við þá...

Re: Hugrekki

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Við skulum bara muna eftir Þorskastríðinu og mynnast þess að við Íslendingar erum ein hugrakkasta þjóð í heimi og skulum vona að svo er ennþá :D” Tja, hugrekki eða ekki hugrekki, við skulum ekki gleyma því hvað það var vandræðalegt fyrir Breta að vera í stríði við vopnlausa bandalagsþjóð sína. Þeir sprengdu ekki upp íslenska báta af því að slíkt hefði verið alvarlegt fyrir þá og þeir hefðu verið harðlega gagnrýndir fyrir slíkt á alþjóðavettvangi. Annars hef ég engar athugasemdir whatsoever :-þ

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“af hverju það er óæskilegt að lögin í landinu eru þannig að vændi er ólöglegt. Því að þannig eru þau. Og það er ástæða fyrir því.” Ég meinti “af hverju það er óæskilegt OG AÐ lögin í landinu eru þannig að vændi er ólöglegt.”

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Þarna ertu að tala um að hætta ekki á að leyfa vændi. Sem sagt, vegna þess að þér finnst eitthvað ekki gott, þá eiga að vera lög gegn því. Ef það er ekki að troða skoðunum upp á aðra þá veit ég ekki hvað það er” Ég skal segja þér hvað þetta er. Þetta er rökstuðningur fyrir því af hverju það er óæskilegt að lögin í landinu eru þannig að vændi er ólöglegt. Því að þannig eru þau. Og það er ástæða fyrir því. “Svarið er einfalt. Banna kúgun, leyfa vændi.” Þetta er einmitt það sem ég var að tala...

Re: Íslensk Sakamál; Þvinguð til vændis til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Amk í þessu máli tóku dómarar konuna trúanlega og hefur hún væntanlega fengið vægari dóm fyrir vikið. ” Að minnsta kosti! Reyndar finnst mér að það hefði ekki átt að sakfella hana, en svona kúgun eins og maðurinn hennar var að beita, þó hún hafi bara verið andleg þá er hún fyrir neðan allar hellur og hann hlýtur að hafa átt dóm skilinn. Það er nefnilega vandamál eins og þú bendir á að ef engin vitni eru að kúgun og þvingunum er erfitt að sanna þær, og ég var bara að miða við hvað...

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nei auðvitað ertu ekki skyldaður til að hlusta á mig, en hugi.is er vettvangur þar sem fólk getur tjáð skoðanir sínar, og það er það sem ég er að gera. Ég er ekki að troða þeim heldur á einn eða neinn ef þú ert að ímynda þér það. “Nei, ég er einn af þeim sem heldur því fram að það ætti að leyfa vændi vegna þess að fólk hefur rétt á því að dunda sér við það sem því sýnist.” Já en ef aukning á vændi leiðir af sér aukningu á kúgun og niðurlægingu fólks sérstaklega frá fátækari löndum, er þá...

Re: Íslensk Sakamál; Þvinguð til vændis til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Urf, ég er sammála þér! Mér finnst líka alveg fáránlegt að vera að taka einhver einstök dæmi um hamingjusamar og ríkar vændiskonur og nota þær sem rök fyrir því að leyfa vændi, en fordæma rök andstsæðinganna fyrir lögleiðingu vændis sem fela í sér að benda á ömurlega meðferð og skort á sjálfsvirðingu enn fleiri vændiskvenna. Það getur verið að lögleiðing á vændi hjálpi þeim sem raunverulega vilja selja sig, en hinum sem leiðast út í það af því þær hafa ekkert val hjálpar þetta ekki neitt, og...

Re: Hugrekki

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er til latneskur málsháttur sem hljóðar svo: Dulce et decorum est pro patria mori. Sem þýðir: Það er ljúft og viðeigandi að deyja fyrir föðurlandið. Ég er ekki sammála því… eða eiginlega ekki, þó svo að ég sé líka mjög föðurlandssinnuð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok