Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

druzla
druzla Notandi frá fornöld 74 stig

Saklaus uns sekt er sönnuð? (22 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Allir hafa auðvitað heyrt um dagforeldrana sem gefið er að sök að hafa hrist litla barnið til bana… Því miður finnst mér alls ekki rétt að farið með þetta fólk, einhvern tíma sagði einhver gáfaður ; saklaus uns sekt er sönnuð en hér er greinilega ekki farið eftir því, því þá væri þetta rannsakað mun betur. Um daginn las ég um hóp lækna í USA sem halda því fram að það sé nóg fyrir börn að detta til að fá þessi einkenni, einnig finnst mér stórundarlegt að maður sem er vanur að passa börn missi...

Hver hefur rétt fyrir sér? (13 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þar sem Islam er mikið í umræðunni núna er eitt sem ég hef verið að hugsa… Þegar fólk hefur verið að rífast um hvað á að gera við Muzlima og þá sem hryðjuverkin gerðu hafa verið nokkrir sem voru alltaf að verja muzlima og hafa talað um ágæti þeirra. Sammála er ég því að ekkki á að drepa bara alla muzlima en sannleikurinn er sá að ég hef verið að lesa bók sem heitir Í fjötrum og er saga Saudi Arabískrar prinsessu. Hún lýsir lífi sínu sem muzlima vel. Eftir að hafa lesið bókina var ég orðin...

kisurnar mínar sjá drauga (20 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég á þrjá ketti. Ég fylgist mikið með þeim, hvernig þeir hegða sér við ákveðnar aðstæður og bara dáist af þeim. Það er alveg merkilegt, sérstaklega með einn þeirra að það er alveg sama hvað þeir eru að gera, ALLTAF þegar ég verð eitthvað leið þá koma þeir til mín og nudda sér upp við mig malandi. Ég hef oft pælt í því hvernig þeir vita að ég er leið og um daginn fannst mér ég verða vör við ömmu mína þegar ég datt aðeins niður ( þetta var daginn sem hryðjuverkin voru) um leið og mér fannst ég...

Þvílíkur Viðbjóður (25 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Vinkona mín átti svartan hreinræktaðan Oriental kött, hann var yndislegur. Hann var með þeim gáfaðri köttum sem ég hef séð, hann fór í fýlu þegar það átti við, plataði hinn köttinn á heimilinu til að gera allskonar skandala og koma sér þar með í ónáð hjá heimilisfólkinu o.s.fr. Hann var orðinn nokkurra ára gamall og hafði alltaf fengið að fara út. Við vinkona mín fylgdust stundum með honum og það var ótrúlega flott að sjá hvað hann passaði sig á bílunum. Svo gerðist það versta sem gat gerst,...

Hver er okkar réttur? (47 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er mikil kattarkona og elska kettina mína eins og þeir væru börnin mín. Tvisvar hef ég svo lent í því að keyrt var á kettina mína og þeir skildir eftir þar sem þeir lágu, jafnvel þó að þeir væru bæði eyrnamerktir og með sjálflýsandi merktar ólar. Nú vil ég vita hver minn réttur er því ég er alls ekki sátt. Er það virkilega allt í lagi að gera svona lagað? Er fólki sem þetta gerir virkilega ekki hegnt ef upp kemst? þvílík illska að gera þetta ég meina, hvað ef þeir hafa kvalist? Auðvitað...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok