Opnaðu terminal. Ef þú ert ekki loggaður inn sem root gerðu þá su - keyrðu lspci til að skoða hvaða hardware er í vélinni. Hvaða dreifingu ertu með upp setta af því að allar leiðbeiningar miðast við dreifingu.
Sjálfsagt að prófa þá að taka annan diskinn úr vélinni. Og eins að víxla köplum. Ef þetta er kapallinn. Ef þetta virkar eins þá skaltu prófa að nota hinn diskinn. Ef hann virkar jafn illa þá er þetta bara rotið móðurborð
Trúlega er vélin að missa samband við annanhvorn diskanna. Hvernig settir þú diskana upp? Raid eða ekki? Prófaðu að fjarlægja annan diskinn ef þú ert ekki með raid uppsetningu. Gæti verið illa festur eða skemmdur kapall
Þessar villur vísa á að ekki takist að lesa úr swap file á disk. Athugaðu hvar swap skráin er og jafnvel búðu til nýja. Gæti bent til að eitthvað sé að diskcontrolle
Sem bendir til að það sé keyboard logger á vélinni þinni, og það lélegur. Vírushreinsun, spywarehreinsun, rootkit leit. Ef ekkert af þessu dugar formattering.
Ef að eitt portið er ekki samsett með uplink portinu oft teiknað kassi utan um þau þá getur þú notað það fyrir vél númer 6. Möguleiki 2 fá sér annann swiss og tengja samman. Möguleiki 3 fá sér stærri swiss og selja þann gamla
Uplink er til að tengja við næsta hub/switch í keðjunni ef þú ert ekki með cross over snúru. Einning getur þú tengt tölvu við uplink portið með því að nota crossover snúru
Keyrðu minnisprófun á minnið. Og eins og nánast alltaf. Lausnin er linux, hver var aftur spurningin? Nær allar dreifingar eru með innbyggt minnisprófunar forrit. T.d. Ubuntu eða bara uppáhaldið SystemRescueCD Startar upp af geisladiskinum og í stað þess að fara í install velur þu minnisprófun.
Þetta getur verið hugbúnaður sem er að eiga eitthvað við CD drifið. Þannig að þetta gæti verið einhver nýlegur hugbúnaður eða patch. Athugaðu hverju hefur verið installað nýlega. Ef þetta er hardware þá gætir þú prófað að starta vélinni af t.d. Knoppix og athuga hvort hún geti lesið CD. Það var Picasa sem fokkaði upp CD driver hjá mér. Þannig að þetta getur verið lúmskt.
Er ekki README skrá sem fylgir cadega sem gefur þokkalegar leiðbeiningar. Gott að fara á vefinn hjá þeim og lesa svollítið til tilbreytingar frá músar klikkunum
Þú startar yfirleitt frá geisladisk í XP. Getur farið í rescue mode þar t.d. Ef þú ert ekki með geisladrif sem þú getur startað frá ertu náttúrulega frekar í vandræðum. Bætt við 12. desember 2006 - 22:02 En ef þú ert að meina að búa til bootdisk þá notar þú bara rawrite til að skrifa diskettuna bootdisk.imb er áreiðanlega einhversstaðar auðfundinn á google
Ef þú ert með iso8859-1 gætir þú prófað mount -t cifs -o credentials=skraarnafn -o iocharset=iso8859-1 Gæti líka verið utf-8 eftir því hvað þú ert að nota
Svarið fer eftir því hvernær spurningin er borin fram. Ef þetta væri fyrir svona 4-5 árum þá væri þetta bara flottur vélbúnaður. En í dag þá er þetta eitthvað sem er helst að finna í gámum á Sorpu… Bætt við 10. desember 2006 - 19:46 Þetta eru reyndar ýkjur þetta er alveg boðleg vél
99% þú ert með spyware sem er keyboard logger og er að senda allt sem þú slærð inn inn á einhverja irc rás í langtíburtistan. Þar sem einhver þrjótur bíður eftir að þú loggir þig inn á heimabankann þinn.
Þú ræður hvort það er text based eða gui baserað. Ef þú vilt. CentOS er bara það sama og RedHat Enterprize sem er eins og áður er hamrað á frábær server. Ef þú ert að fikta með þetta og kannt í raun eitthvað á windows þá ætti linux ekki að vefjast fyrir þér.
Hvað þarftu að kunna? Kanntu eitthvað raunverulega á windows? Bætt við 9. desember 2006 - 16:02 Modduð Xbox eru t.d. að keyra linux og það er ekki að vefjast fyrir mönnum að nota þau
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..