Ég veit nú ekki um neitt ráð til að hjálpa þér, nema kannski að forðast sólina. Langar samt að segja að mér hefur alltaf fundist freknur gefa sterkan svip og persónueinkenni á fólki sem er bara töff….<br><br><b><i>Ekki vera slagorð vertu ljóð, þau lifa lengur</b></i
Það er bara ljótt að hafa samvaxnar augabrúnir, hvort þú sem ert kvenkyns eða karlkyns. Það á aldrei að raka augabrúnir (nema þú fílir það). Bara venja sig á að plokka, venst eftir nokkur skipti.
Tja, ef þú vilt vera mest þroskuðust skaltu ekki láta þetta skeita þig neinu. Og sjáðu til, þá verður þú mest cool. Og auðvitað skaltu bara vera þú sjálf.
Ég heyrði að Orville, sem á Exodous, geri svona dreadda lokka. En þetta tekur víst óratíma, kostar sitt og fer ekki vel með hárið. Persónulega finnst mér svona lokkar bara fara svörtu fólki, því þetta hentar frekar fyrir þeirra hár.
Til að byrja með, þá hefur myass skrifar allnokkrar greinar og margar þeirra hafa verið nokkuð krassandi svo ég veit ekki hversu alvarlega mar á að taka manneskjuna? Anyhow, það er ólöglegt að ofsækja fólk. S.s. ef það verður til þess að þitt daglega líf raskist töluvert skal líklegast kæra. Í Bandaríkjunum væri ekkert mál að fá nálgunarbann. En ok, þessi gaur er 17 ára og væntanlega ætlar hann ekki að senda þér eitraða rós í pósti eða eitthvað þvíumlíkt. Segðu honum bara að þú hafir ekki...
Og btw, smoothy þú segir “blaut meik” og væntanlega ertu að meina í fljótandi formi. Satt að segja þekja þau betur, eru ekki eins feit og kökumeikin, húðin andar betur og áferðin er léttari. En hey, þetta er bara mín reynsla :)
Þetta kemur eingöngu frá minni reynslu fyrir mína húð; Ef þú vilt kökumeik þá mæli ég með frá Esteé Lauder. Það er talkún frítt sem hindrar það að húðin verði feit. En það meik er ekki olíufrítt. Góð meik í fljótandi formi eru að mínu mati best frá Clinique. Superbalanced formula eða Stay True fromula. Tek fram að þessi meik eru í flöskum ekki túpum. Og eru þau olíu- og ilmlaus. Persónulega finnst mér meik anda betur í flöskum.
Really? Ég hef nú aldrei vitað til þess… en já, þetta er frekar asnalegt. Ég myndi vilja að vera ráðin í starf á grundvelli þess hve góða hæfileika og menntun ég hef, ekki bara útaf kyni.
Hahahahahaha það er svo fyndið þegar fólk er að dæma og gagnrýna hitt og þetta fólk sem sést á skjánum eftir útliti og framkomu og sjálft er það oft á tíðum bara forljótt! PLease
Þetta er nú bara það fallegasta lesbíska par sem ég hef séð! Þvílík fegurð, sem segir það líka að lessur séu ekki allar karlmannlegar. Og ég þoli ekki þegar stelpur eru að “feika” athafnir sínar (s.s. eru ekki lesbískar í raun) bara fyrir athyglina.
Afstaða fólks er svo hrikalega misjöfn. Persónulega finnst mér tattoo mörg hver geta verið flott en sjálf held ég að ég muni aldrei fá mér eitt slíkt. Þannig er mín afstaða. En eitt langar mér að taka fram sem fólk þarf að hafa í huga þegar það fær sér tattoo. Og það er að vera frumlegur, s.s. ekki vera að fá sér eins og margir aðrir einungis útaf því að það er í tísku þessa stundina. En annars getur verið að fólki finnist það einfaldlega flott og þá er ekkert við því að segja :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..