Mig vantar svo e-ð gott meik… ég keypti mér mac púður um daginn og það fer rosalega í taugarnar á mér. Það gerir húðina svo stífa! Áður en ég keypti mac þá notaði ég marbert meik í gulu boxunum, það er mjög gott en litirnir eru bara tveir. Annar þeirra er alltof ljós og hinn aðeins of dökkur. Ég vil hafa þetta handhægt helst í dollum sem púðinn er inní. Þar sem ég er með frekar dökka húð finnst mér púður ekki alveg virka á mér, þannig að ég vil helst meik.

Endilega svarið mér:)

P.s ekki blautt meik!