Ég veiði ekki, og hef í hyggju að nota hundinn sem heimilishund. Ég er búinn að lesa mér mikið til um hundinn, og það sem verður erfiðast að eiga við er jú strokugirnin, en hún kemur til af alveg einstaklega sterku lyktarskyni, hundurinn missir fókus á öllu öðru en lyktinni, og hlýðir illa á meðan hann fylgir henni. Hins vegar sýnist mér mjög margir afa náð góðum tökum á þessu, með tíma og natni.