Komiði heil og sæl. Ég er búinn að velta mikið fyrir mér síðustu árin að fá mér hund, og hef nú ákveðið að gera það í haust, um leið og ég er kominn heim úr sumarleyfi. Eftir að hafa kynnt mér vel hvað hentar best mínum heimilisaðstæðum, hef ég ákveðið að fá mér Beagle hund. Ég umgengst hunda daglega, og hef mikla reynslu af þeim, þannig að ég hef engar áhyggjur af uppeldishlutanum . Hins vegar finnst mér erfitt að vita hverjum á að treysta þegar kemur að því að velja sér ræktendur. Ég hef...