Farðu bara í bókasölu stúdenta, það eru asísk fræði kennd í HÍ svo þeir hljóta að hafa eitthvað. Það er bláa ferkanntaða húsið í miðjunni á háskólanum, bakvið stóru gráu aðalbygginguna. Svo geturðu líka beðið bókasafnið þitt um að panta japanskar bækur, þeir gera það ef maður spyr sérstaklega um einhverjar bækur. Venjulegar bókabúðir eins og Eymundsson myndu svosem gera það líka, en það kostar örugglega helling, svo það er kannski ekkert sniðugt..