Hún kom til mín gangandi Í rauðri úlpu með bakpoka. Fóru stelpurnar án þín? Mmm.. Mamma kemur bráðum aftur, Mmm.. Hún fór frá mér gangandi Og samstundis fylltist ég hatri Á manneskjum Sem meðhöndla litlar manneskjur eins og skít. Og þá sá ég sorgina, systir mín hafði ekki lært að fela hana hennar fimm ára hjarta hafði aldrei þurft þess -venjulega var hún öðruvísi -venjulega var orðaforðinn hennar fjölbreyttari Og þá sá ég sorgina, því það sama átti við um okkur báðar -venjulega var ég...