Ég hef mikið pælt í endanum á 6. bókinni síðan ég las hana … Mér finnst auðvitað hræðilegt að Dumbledore sé dáinn en ég er búin að sætta mig við það. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hver tók helkrossinn sem þeir Harry fóru að ná í. Hvað átti þessi skammstöfun að þýða? Vissi Dumbledore ekki af þessu? Af hverju er Rowling að fórna honum fyrir þetta? Það hlýtur að vera góð ástæða fyrir þessu öllu.