Ég horfi á lost og ég er búin að sjá fyrstu 13 þættina (2. sería). Ég er samt ekki búin að sjá alla fyrstu seríu :( Ef mér hefur einhverntímann líkað vel við einhverja persónu er ég líklega búin að missa álit á henni núna … Þú skilur það þegar þú verður búin að sjá 13. þátt … Samt, þegar ég hugsa um það er Lock mjög góður og líka feiti gaurinn sem vann í lottói (ég get aldrei munað hvað hann heitir). En samt myndi ég ekki segja að ég eigi neitt uppáhald. Ef ég segi hvaða persónur ég hata og...
Eiginlega allar persónurnar í Harry Potter eru útpældar og nöfnin segja flest mikið um persónuna. En Angela og Diabola, hvað er það? Ég kannast eitthvað við þetta en geturðu sagt mér um hvað þetta er? Takk fyrir :)
Ættu hin strengjahljóðfærin þá ekki að flokkast í plokk, strok og ásláttarhljóðfæri? Það er ekki hægt að bera þetta saman við blásturshljóðfæri því þau eru ekki flokkuð eftir sama, enda hafa þau allt aðra eiginleika.
Ég held að það deyji margir. Þú hefur kannski tekið eftir því að í 6. bókinni dóu frekar margir sem kannski skiptu ekki miklu máli en sýndu hvað var að gerast. Þótt það hafi bara dáið einn svona aðal, dóu margir aðrir …
Ég held allavega að Snape sé að fara að deyja. Hann er allavega nógu hataður til að vera drepinn. Voldemort deyr líklega, ég gæti ekki trúað öðru. Mig langar ekki einu sinni að hugsa hver af “góðu köllunum” deyr en ég vona bara innilega að það verði ekki Ron, Hermione eða Ginny. En það þarf að fórna einhverjum (það hefur verið þannig í bókunum og gerir þær raunverulegri og betri) Ég var fyrst mjög reið þegar Rowling leyfði Dumbledore að deyja en ég sé núna að hann þurfti að deyja.
Eigum við að byrja með byltinu. Í staðin fyrir að nöldra yfir lélegum korkum getum við hrósað fólki fyrir góða korka (og greinar líka) og þá hættir fólk að gera lélega korka (vonandi) því fólk vill fá hrós. Ertu með?
Þegar maður hamrar (e. hammer) á bassa eða gítar er það alveg eins og þegar maður spilar á t.d. bongótrommur. Eins og þú hefur sagt með blásturshljóðfærin er þetta oft flokkað eftir því hvernig hljóðið myndast og hljóðið í píanói myndast þegar strengirnir titra, eins og hjá öðrum strengjahljóðfærum. Hljóðið í ásláttarhljóðfærum er oftast hvellt og ég sé ekkert líkt með því og píanótónum. Samt sem áður er ég alveg til í að segja að píanó sé bæði strengja- og ásláttarhljóðfæri en ég hef oft...
Það er alltaf gaman að fá hrós :) Sumum líður kannski illa og þá er hrós mjög gott. Mér finnst að hugarar ættu að gera meira af því að hrósa fólki í staðin fyrir að vera með skítkast.
Vá, mér er farið að líða illa með þessi trivia … Ég hefði getað svarað einni spurningu þarna, Kashmira Bulsara, og kannski einni annarri ef ég hefði spurt systur mína … Ég hélt að ég vissi mikið um tónlist :S
Mig langar svo að fara á þessa tónleika … Ég er búin að vera að bíða eftir að það komi einhver sem mig langi að fara á en svo var mér boðið að fara á Hróarskeldu og allir peningarnir fara í það. Er einhver möguleiki að hann spili þar?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..