Ég fann þessa síðu um daginn, skráði mig bara í leiðindum mínum og svo var verið að bjóða mér í hljómsveit … Þá fattaði ég að ég get ekkert verið með í hljómsveit (þó mig langi það), bæði af því ég er stödd á austurlandi og ég er of upptekin …
1. Allt of margir … Harry Potter, Tolkien … Eiginlega bara allar fantasíur :) 2. Þær eru svo margar! Þegar ég var lítil var Elsku Míó minn eftir Astrid Lindgren lengi uppáhaldið mitt en núna er ég búin að lesa svo margar góðar bækur … 3. Í augnablikinu er ég mest að lesa bók fyrir ensku sem heitir The Pearl. Svo er ég að fara að byrja á Laxdælu fyrir íslensku og Drengene fra Sankt Petri fyrir ensku. Svo hef ég verið að lesa ævisögu afa míns síðan um jólin (sem hann var að gefa út) Úfff …...
Jei!! Afmælisdagurinn minn :) Mjög eftirminnilegur afmælisdagur því vinkona mín fermdist þennan dag og ég fékk fermingaveislu í staðin fyrir afmælisveislu :D
Úps, meinti ekki pálmasunnudag :S Hvað var ég að hugsa? (ég er veik … ef það er afsökun :P) Ég fermdist á hvítasunnuni :) Það er miklu betra … Sumar og sól :D
Ég hélt að flestir spiluðu svona venjulega í dúr og moll … Kirkjutóntegundirnar eru kannski notaðar til að spinna en ég hef ekki heyrt mörg lög í þessum tóntegundum …
Ekki hafa fyrir því … vinur minn er búinn að pína mig í allan dag :( Slökkti á tölvunni minni þannig að ég týndi leik sem ég var í og eyðilagði leikinn minn :( … Ég þarf ekki meira einelti … :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..