Ég hef áhuga á rúnum! Af hverju sá ég þetta ekki á réttum tíma :( Fann bara nafnið mitt þarna :P Allavega, ég á rúnir en er ekki mikið að spá með þeim, ég er meira að pæla í að lesa gamlar rúnir og svona.
Já, mér fannst ég heppin að lenda á Forrest Gump :P Ég held að það hafi verið eina myndin sem ég hefði nennt að horfa á … Kastrup? Úfff … Ég lenti í svakalegri töf þar þegar ég var á leiðinni heim. Það var allt í vitleysu, eitthvað flokkunarkerfi bilað og allt of fáir að vinna. Við fengum ekki einu sinni tíma til að fara í fríhöfnina af því það vissi enginn hvenær ætti að mæta (ekki heldur starfsmennirnir) og svo var klukkutíma bið í viðbót eftir að allir voru komnir inní vél. Þvílíkt vesen!
Sama hvort þú tekur það aftur eða ekki, þú ferð í hraðferðaráfanga í framhaldsskóla. Ef þú nennir að taka aftur próf bara til að fá betra en góða einkunn er það ágætt. En það er eiginlega óþarfi … 7,5 er meira en margir fá :)
Hvert ertu að fara? Ég fór í flug um daginn, þá var sýnd myndin Forrest Gump á leiðinni heim, ég man ekki hvað var á leiðinni út … Það eru engar frábærar myndir þarna, ég mæli frekar með að kaupa eitthvað skemmtilegt að lesa.
Ég hlusta sem betur fer aldrei á þetta og yfirleitt ekki útvarp nema í vinnunni (léttbylgjan ><) Ég bara fíla allt aðra tónlist en þá sem er spiluð í útvarpinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..