Annað hvort sjá aðeins betur eða vera með augu sem þola linsur. Hundleiðinlegt að þurfa alltaf að vera með gleraugu … Væri svosem í lagi ef maður gæti skipt annað slagið um gleraugu Bætt við 21. apríl 2009 - 20:23 Annars bara það sama og allir. Er ekkert það ósátt við gallana mína :)
Ef þú reykir á djamminu er líklegra að þú farir að reykja daglega … Svo hættu meðan þú getur. Plús það að hver er tilgangurinn með að reykja þegar maður drekkur? Kostar bara auka peninga, eins og maður eyði ekki nóg í áfengið …
Segja við kennarann að þú skilir engri ritgerð fyrr en hann segir hvað hann er að biðja um. Þoli ekki kennara sem vilja ekki segja manni hvað þeir vilja en skammast svo þegar maður gerir ekki eins og þeir hugsa
Ef barnið er vant því að það sé talað við það rólega þá mun það mun líklegar skila drykknum án þess að það þurfi meira. Ef það er samt óþægt og ekki vant því að það sé öskrað á það, þarf ekki annað en setja upp smá reiðisvip og endurtaka.
Ég svaraði 12 spurningum og nennti svo ekki orðaspurningunum. Fékk 10 rétt. Helvítis, trúi ekki að ég hafi klikkað á 7 spurningunni! Þetta voru samt skemmtilegar þrautir :)
Veit ekki. Ég þekki fólk í þessum skóla sem eru frábærir tónlistarmenn. Held að þau hafi bara viljað leyfa öðrum að komast að því það er alltaf sama fólkið sem sér um allt tónlistalíf þarna … Held samt aðallega að þau hafi verið stressuð og/eða ekki vön svona hljóðkerfi eða eitthvað …
Já, fólk er það grunnhyggið. Einu sinni var kona að meikaða í american idol og hún var í kjörþyngd (semsagt ekki vannærð), og það fór allt í vitleysu því hún var víst of feit … Man ekki hver þetta var, en fréttin var minnisstæð.
Hann var samt ekki þannig falskur, hljómaði eins og stress. Hann var ekki að syngja bara í vitlausri tóntegund eins og þau frá FAS, það er örugglega frekar vesen með mónítora :)
Sýklahræddur og nagar á þér neglurnar? How is that possible … Þú áttar þig á því að undir nöglunum er örugglega eini staðurinn á líkama þínum þar sem einhverjir “merkilegir” sýklar geta falið sig … (með “merkilegir” meina ég aðrir en þessir sem eiga að vera á líkama okkar)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..