Haha :D FAS voru í smá stuði. Þetta eru gömlu bekkjasystkini mín en ég er í öðrum skóla og svo þegar ég sýndi skilti með mínum skóla á öskruðu þau að ég væri svikari :P Ruglaða fólk … En annars, til hamingju VMA-ingar! Mér fannst ykkar lag æðislegt og í fyrsta skipti í langan tíma var ég sátt með úrslit í svona keppni (mér finnst dómarar svo oft velja bara sætu ljóshærðu stelpuna sem syngur jafn vel og allar hinar sætu stelpurnar (sem eru sirka 200)) Mér fannst sérstaklega...
Haha :D Mér finnst þau skemmtileg. Sérstaklega þrautir sem þarf 2 bls. af útreikningum til að leysa :P Ok, ég er stærðfræðinörd … Hvað er ég að gera á myndlistaáhugamálinu?
Sama þótt það séu tvíburar, félagsmótun verður aldrei eins fyrir tvo einstaklinga. Ég veit ekkert hvernig þetta gerist, og enginn getur vitað það. Alveg eins og enginn getur vitað af hverju einhver manneskja elskar einhverja aðra.
Eitt orð: Kjánalegt. Kommon! Fullt af krökkum mæta til að horfa á eitthvað rifrildi og henda eggjum í stelpur! Bara leyfa þeim að leysa sín mál í friði. Mér er alveg sama hvor lagði hvora í einelti, þær gerðu sig báðar að fíflum með þessu.
Það er skrítið … Vinur minn átti að vera með mígreni (sem hann var ekki) og hann var alltaf á einhverjum nýjum verkjalyfjum. Það er til svo mikið af þessu og þótt þú sért með ofnæmi fyrir parkódíni ættirðu alveg að geta fengið eitthvað sterkara en íbúfen … Ertu kannski bara með 400 mg íbúfen?
Ég var að tala um þá sem ég man eftir fyrir utan vini mína. Það er frekar augljóst :P Ég man meira að segja nokkur nöfn sem þú hefur haft :O Bætt við 13. apríl 2007 - 00:07 Þú tekur kannski eftir því að ég nefndi ekki tvíburasystur mína … :P
“Ég er að skrópa í skólanum” Hvað með að fá læknisvottorð uppá veikindi og skrópa löglega? Þá geturðu farið með frænda þínum og slakað á, því þú ert með afsökun fyrir að hugsa ekkert um skólann. Reyndi læknirinn ekki nein önnur verkjalyf en parkodin? Hvað með Voltaren? Hversu sterkt íbúfen ertu að taka? Eru ekki einhverjir fleiri möguleikar sem ættu að gera eitthvað fyrir þig? Ef læknirinn þinn gefur þér ekki almennileg lyf eftir aðgerðina er hann frekar lélegur …
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..