Ég sendi þessa grein inn á hljóðfæri um daginn. Mér fannst hún viðeigandi á þessu áhugamáli líka.


Kennarinn minn sem hefur verið að kenna mér í vetur er Bandarískur og hefur mjög mikla reynslu í tónlistabransanum. Hann talar mjög mikið í tímum og ég hef lært mikið um hljóðfæri í þessum tímum. Ég ætla bara að segja smá af því sem ég man.

Í tíma um daginn spilaði ég eiginlega ekkert því kennarinn talaði allan tímann. Hann var að fræða mig um framleiðendur og tegundir hljóðfæra. Hljóðfæri eins og þverflautur og saxófónar eru framleidd í stórum verksmiðjum í Asíu. Það er einhver verðmunur milli tegunda, en í rauninni eru þetta flest sömu hljóðfæri, gerð eftir sama módeli. Þetta finnst mér skrítið því það ætti að skipta meira máli hvaða tegund maður kaupir. Þessi hljóðfæri eru líka ekki eins oft handunnin eins og áður. Það er bara eftir eitt fyrirtæki í Bandaríkjunum sem framleiðir handunna saxófóna, Martin. Það er eitt sérstakt við handunna saxófóna, bjallan (það sem er breiðast) er ekki slétt heldur eru eins og örsmáar tröppur (sést ekki með berum augum). Þetta er mjög mikilvægt fyrir hljóminn.
Hljóðfæri eins og fagott eru hinsvegar oftast handunnin, þ.e.a.s. ef það eru góð hljóðfæri (ekki svona “skólahljóðfæri”). Maður kaupir ekki endilega nýtt fagott á einum degi. Maður þarf kannski að bíða lengi eftir að það sé búið að búa það til. En það eru auðvitað miklu betri hljóðfæri.
Einu sinni framleiddu Bandaríkin mikið af hljóðfærum en núna eru flest framleidd í Taiwan, Kína og öðrum Asíulöndum með ódýrum starfskrafti. Mörg hljóðfæri eru líka gerð í Japan, t.d. fiðlur og selló.

Annað sem kennarinn minn talaði um var hvernig nótur og nótnabækur voru gerðar áður fyrr.
Einu sinni voru bara gerðar sérstakar plötur til að prenta nótur á blöð. Í stríðum glötuðust þær oft og einhver hirti plöturnar og notaði þær til að prenta út upp á nýtt. Þessir menn kunnu oft ekki mikið fyrir sér í tónlist og tóku þess vegna ekki alltaf eftir villum á plötunum (sem voru kannski illa farnar) Þá var einhver fenginn til að leiðrétta þetta með penna! Hugsið ykkur.
Áður en tölvur urðu til var líka erfitt að búa til almennilegar nótur því það þurfti að handskrifa allt. Kennarinn minn vann við þetta og stundum þurfti hann að eyða heilu klukkutímunum í að reikna út hvernig átti að skipta milli lína og blaðsíðna, finna hentugan stað til að fletta. Þetta hefur ekki verið auðvelt, auk þess að skrifa fallega og skiljanlega og skilja frumritið sem var kannski illa skrifað.


Ég vona að þið hafið haft gaman af þessum fróðleik og látið mig bara vita ef ég á að reyna að muna eitthvað fleira sem kennarinn hefur sagt (hann talar oft mjög mikið!) Ég get ekki verið alveg viss um að allt sé satt í þessu en ég tel það frekar áreiðanlegt sem kennarinn segir.


Takk fyrir mig.