Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

deTrix25
deTrix25 Notandi frá fornöld Karlmaður
334 stig

Vefhotel.com (1 álit)

í Netið fyrir 19 árum
Mig langar að heyra hvort fleiri hafi lent í því að greiða Vefhótelinu fyrir vistun og síðan ekkert heyrt frá þeim? Ég er búinn að senda þeim e-mail, sem ekki hefur verið svarað. Engvir símar eru skráðir á fyrirtækið og því ekkert samband hægt að hafa við þessa menn. Furðulegt. deTrix

Til sölu stálfelgur á Ford Focus (0 álit)

í Bílar fyrir 20 árum, 1 mánuði
Til sölu fjórar stálfelgur á Ford Focus. Lítið notaðar og ágætlega útlítandi. Áhugasamir geta sent skilaboð. deTrix

Flugnet.com (0 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það er búið að opna nýja síðu sem heitir <a href="http://www.flugnet.com">Flugnet</a>. Þetta er mjög flott síða, það er bara vonandi að hún nái sér að flug :) deTrix

Þota rennur til á Reykjavíkurflugvelli (7 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þota Íslandsflugs stendur nú þversum á brautarenda 01, eftir að hafa runnið til í hálku, samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins. Vélin var að koma úr ferjuflugi frá Keflavík og rannsakar Rannsóknanefnd flugslysa nú atvikið. deTrix

Fly-by-Wire (6 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Einn valmöguleikinn í könnunninni sem er uppi núna er: “Hrikalegt, fáránlegt að einhver tölva ráði meiru en flugmennirnir”. En er það sjálfgefið að þótt vélin sé með Fly-by-Wire að hún sé “Error tolerant”? Samkvæmt því sem ég hef lesið vinnur Airbus samkvæmt þeirr kenningu að flugmaðurinn veit minna og flugvélin meira - réttara er líklega að segja að flugvélin leyfi flugmanninum ekki að gera það sem hún veit að hún getur ekki. Boeing hefur aftur á móti sagt að þeir treysti flugmanninum til...

Tenglar (1 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég vil benda stjórnendum á það að það þarf að fara í gegnum tenglasafnið og eyða út tenglum sem virka ekki, ásamt þeim sem hafa af einhverri ástæðu fyrir inn tvisvar. Ég hef sent tveimur stjórnendum ábendingu um þetta, fengið loforð og bót og betrun, en ekkert hefur gertst :) Er ekki rólegt í fluginu núna og tími til að taka smá til fyrir jólin? :) Ég veit ekki afhverju ég er að láta þetta fara í taugarnar á mér… svona er það bara :) Kveðja, deTrix

www.lagflug.tk - Ný heimasíða! (4 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Jæja gott fólk! Við erum búnir að uppfæra heimasíðuna okkar. Endilega lítið inn og fáið ykkur kaffisopa! (komið með eigin kaffi!) <a href="http://www.lagflug.tk">Flugklúbburinn Lágflug</a> Kveðja, deTrix

Boeing 777-200 Cockpit video (16 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Fyrir mistök fékk ég sent Boeing 777-200 Cockpit video á VHS formi, en ekki DVD eins og ég vildi fá það. Ef einhver vill eignast þetta myndband á sangjörnu verði, hafðu þá samband. Spólan er enn í plastinu! Sjá nánar: <a href="http://shop.pilotwarehouse.co.uk/product317023.html?session=15982782030708">Pilot Warehouse</a> Kveðja, deTrix

Atlanta endurgreiðir!? (2 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég var að heyra af því að þeir sem hefðu borgað sig inná 757/767 námskeið hjá Flugskóla Íslands hefðu fengið endurgreitt gegn því að skrifa undir bond við Atlanta. Hefur einhver heyrt um þetta? Er eitthvað til í þessu? deTrix

Eitthvað nýtt (3 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvernig væri nú að menn geri eitthvað til þess að lífga uppá þessa síðu? Á ekki einhver góða grein sem honum langar að leyfa okkur hinum að lesa? Hefur engin skemmtilega athugasemd til að setja hérna á korkana? Hvernig væri ef stjórnendurnir fari svo í það að afgreiða innsenda tengla, skoðanakannanir og þ.h. - það hlýtur eitthvað að vera að gerast þar! :) Kveðja, deTrix

Flugsýn á uppboð (4 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 8 mánuðum
jamm…

Nýr flugvöllur - BIVA (4 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Á heimasíðu flugmálastjórnar má sjá eftirfarandi Notam: C-NOTAM nr. 0139/03 BIVA Vatnsnesflugvöllur skráður í AIP Gildir frá: 24. júlí 2003 kl. 15:00 Gildir til: 25. september 2003 kl. 15:00 Nýr lendingarstaður. Flugmálastjórn hefur skráð nýjan lendingarstað, BIVA, á Vatnsnesi í Grímsnesi, brautin er grasbraut 796 metra löng og 25 metra breið, brautarstefnur eru 03/21. Hæð brautar er 51 m.y.s.eða 167 fet. Viðmiðunarpunktur er 64°01´59,203? N og 20°39´03,709? W. Háspennulína sem þverar Hvítá...

Hamborgarabrauð ÁN sesamfræja?! (2 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta er undarleg spurning, en veit nokkur hvar hægt er að fá hamborgarabrauð ÁN sesamfræja? deTrix

Now Airlines er að ráða! (0 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Now Airlines er nýtt breskt flugfélag, sem áætlar að hefja flug í ágúst. Félagið þarf að ráða flugmenn (1st og 2nd officer) og flugstjóra á 737 vélina sína (verður staðsett á Luton) og því er um að gera fyrir ykkur hugara að sækja um! Flugstjórar: Breskt þjóðarskírteini eða JAR ATPL, 4500TT, þar af 2500 hjá flugfélagi, 750 PIC á týpu. Verður að mega búa og vinna í Bretlandi. (Íslendingar mega það!) Flugmaður: Breskt þjóðarskírteini eða JAR ATPL, 1500TT, þar af 1500 hjá flugfélagi. Verður að...

MD airlines (0 álit)

í Flug fyrir 21 árum
Jæja, þá er það víst orðið opinbert, MD er farið á hausinn. Fúlt. deTrix

Meiri vinna! (0 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 1 mánuði
Viking Airlines er að auglýsa eftir flugstjórum og mönnum í flugumsjón. Flight Dispatchers / Operations Controllers Vacancies currently exist for Flight Dispatchers/ Operations Controllers in our Operations Control Centre in Athens, Greece. You should have a minimum of 2 years Crewing and/or Operations experience. Be fully conversant with Flight Planning, Slot control, Day to day Crewing & general coordination of a busy charter operation. You must be able to work to tight deadlines, often...

Vinna (4 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 1 mánuði
Nýtt breskt flugfélag sem heitir Fly-Now er að leita eftir flugmönnum. Samkvæmt heimasíðu félagsins eru þetta kröfurnar: Captains UK or JAR ATPL acceptable to the UK CAA At least 4500 hours flying experience At least 750 hours command time on B737 or similar jet airplane At least 2500 hours of commercial airline experience Current JAR Class 1 medical The right to live and work permanently in the UK First Officers UK or JAR ATPL acceptable to the UK CAA At least 1500 hours flying experience...

Laun flugmanna (3 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 1 mánuði
Á þeirri góðu síðu PPRN, sem Aesir benti okkur hérna á einu sinni, fann ég link að nokkuð athyglisverðri síðu fyrir ykkur sem ætlið að hafa atvinnu af því að fljúga í framtíðinni. Professional Pilots’ Job Network segir svo sem ekkert til um það hvort þið munið fá vinnu í framtíðinni, en þarna er hægt að sjá hversu mikið þið munuð fá í laun hjá einhverju félagið ef þið skilduð verða svo heppnir (eða óheppnir) að fá vinnu hjá því. Mig langar að biðja ykkur um að skoða hversu mikið Atlanta er...

EAS á Íslandi (7 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Nú hef ég verið á Líkami Fyrir Lífið prógramminu í næstum þrjá mánuði og líkar vel. Árangurinn er greinilegur og mér finnst ég vera að uppskera árangur erviðisins. Þegar ég var að byrja ákvað ég að fara í verlun EAS á Íslandi og fá ráðleggingar um næringa og próteindrykki. Þetta er þjónusta sem þeir bjóða fólki og fannst mér alveg nauðsynlegt að fara þar sem ég vissi svo lítið um það sem ég var að fara útí. Jæja, í stuttu máli get ég sagt það að þetta var alveg glatað! Reyndar finnst mér...

Pizza panna (6 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hvar maður getur keypt pizza pönnu, þ.e. pönnu líka þeim og þeir nota á Pizza Hut? Kveðja, deTrix

A Plane is Born (6 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Mig langar bara að minna menn á það að þættirnir KR2 var að segja okkur frá, A Plane is Born, eru byrjaðir á Discovery. Ég sá fyrstu tvo þættina í gær og ég held að þetta séu þættir sem engin flugáhugamaður vill láta framhjá sér fara. Vissuð þið að það er til Discovery sjónvarpsstöð sem heitir Discovery Wings? Mér skilst að þetta sé stöð sem er 100% tileinkuð flugi! Er einhver hérna sem hefur séð þessa stöð? Kveðja, deTrix

Makkarónur og ostur (4 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nú þegar allir eru að hugsa um jólasteikina langar mig að sýna ykkur smá uppskrift sem gerir ykkur kleift að borga fyrir steikina góðu. Makkarónur og ostur er matur eins og hann gerist ódýrastur, það er svo ekki verra að þetta bragðast bara alveg ágætlega :) En svona er uppskriftin: 1 pakki makkarónur (honning) 100 gr. ostur 30 gr. smör 30 gr. hveiti 3 dl. mjólk 1/2 tesk. sinnep (dion t.d.) Salt og pipar eftir smekk Ég byrja á því að setja smjörið og hveitið í pott og hræri því saman. Um...

TV-Out (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jæja, ég er í einhverju djöfulsins basli með TV-Outið á skjákortinu mínu. Um daginn var ég búinn að stylla þetta inn og þetta virkaði vel. Svo var ákveðinn heimilismaður sem kvartaði yfir því að það væri vont að músin færðist lengst til hægri og vildi láta taka þetta út. Ég aftengdi þetta, en núna þegar ég ætla að setja þetta upp aftur get ég það ekki. Ég er búinn að fara mörgum sinnum yfir þetta allt og ég veit það að mér er líklega að sjást yfir eina litla styillingu! Eitt sem ég held að...

Dell Inspiron (6 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Til sölu fjórar Dell Inspiron fartölvur. Vélarnar eru fengnar í Tölvulistanum og gætu því e.t.v. verið í ábyrgð. Vélarnar eru lítilsháttað laskaðar eftir brottfluttninginn aðfaranótt síðastliðins fimmtudags, og í eina þeirra vantar geisladrif og rafhlöðu, sem týndust á hlaupunum frá Tölvulistanum. Áhugasamir geta fengið að skoða tölvurnar í dag og næstu daga, en annars geri ég ráð fyrir því að fara á Hraunið eftir miðjan mánuðinn og get því ekki sýnt vélarnar eftir það fyrr en um mitt sumar...

Listflugsveitin Red Arrows væntanleg til Íslands (4 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Samkvæmt morgunblaðinu er listflugsveitin Red Arrows væntanleg til Íslands n.k. mánudag. Segir þar að listflugsveitin muni sýna listir sínar í lágflugi yfir borginni kl. 15, svo fremi sem veður og aðstæður leyfi. Nú þarf ég bara að sannfæra minn yfirmann um það að það sé algjör óþarfi að ég vinni seinni hluta mánudags, þó það sé mesti annatíminn… :) Kveðja, deTrix
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok