Samkvæmt morgunblaðinu er listflugsveitin Red Arrows væntanleg til Íslands n.k. mánudag. Segir þar að listflugsveitin muni sýna listir sínar í lágflugi yfir borginni kl. 15, svo fremi sem veður og aðstæður leyfi. Nú þarf ég bara að sannfæra minn yfirmann um það að það sé algjör óþarfi að ég vinni seinni hluta mánudags, þó það sé mesti annatíminn… :)

Kveðja,
deTrix