Til sölu fjórar Dell Inspiron fartölvur. Vélarnar eru fengnar í Tölvulistanum og gætu því e.t.v. verið í ábyrgð. Vélarnar eru lítilsháttað laskaðar eftir brottfluttninginn aðfaranótt síðastliðins fimmtudags, og í eina þeirra vantar geisladrif og rafhlöðu, sem týndust á hlaupunum frá Tölvulistanum. Áhugasamir geta fengið að skoða tölvurnar í dag og næstu daga, en annars geri ég ráð fyrir því að fara á Hraunið eftir miðjan mánuðinn og get því ekki sýnt vélarnar eftir það fyrr en um mitt sumar 2004.

Áhugasamir sendi mér skilaboð - aðrar kontakt upplýsingar er hægt að fá hjá Lögreglunni í Reykjavík og Fangelsismálastofnun.